fös 26. nóvember 2021 19:28
Victor Pálsson
Messi tjáir sig um skipti Ronaldo
Mynd: EPA
Lionel Messi, leikmaður Paris Saint-Germain, hefur tjáð sig um endurkomu Cristiano Ronaldo til Manchester United í sumar.

Ronaldo hefur verið einn besti ef ekki besti leikmaður Man Utd í vetur en hann gekk aftur í raðir liðsins eftir 11 ára fjarveru.

Ronaldo er orðinn 36 ára gamall en hann og Messi þekkjast vel eftir að hafa leikið með Real Madrid og Barcelona.

Messi hrósar Ronaldo fyrir endurkomuna en Portúgalinn hefur skorað tíu mörk í 14 leikjum á tímabilinu.

„Cristiano vissi það að félagið væri í öðruvísi stöðu í dag og hann hefur aðlagast mjög vel sem er aðdáunarvert," sagði Messi.

„Alveg frá byrjun þá hefur hann skorað mörk og hefur ekki átt í neinum vandræðum með að aðlagast."

Messi skipti sjálfur um félag í sumar er hann yfirgaf Barcelona fyrir franska stórliðið PSG.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner