Bæði Raphinha og Rodrigo verða klárir fyrir Leeds United sem mætir Brighton í ensku úrvalsdeildinni á morgun.
Um er að ræða tvo gríðarlega mikilvæga leikmenn fyrir Leeds sem leikur undir stjórn Marcelo Bielsa.
Báðir leikmennirnir misstu af leiknum við Tottenham um síðustu helgi þar sem Leeds tapaði með tveimur mörkum gegn einu.
Bielsa staðfesti það sjálfur á fimmtudag að þessir leikmenn væru heilir og verða til taks er flautað er til leiks 17:30.
Luke Ayling er hins vegar enn að jafna sig af meiðslum og mun leika með varaliði félagsins á mánudaginn.
Robin Koch og Patrick Bamford eru einnig meiddir og verða ekki með í þessum leik.
Athugasemdir