Fotbolti.net
26.11.26 - 23:01
Ívan Guðjón Baldursson

Fagnaði tvennu með nýjum langtímasamningi

Fagnaði tvennu með nýjum langtímasamningi
Canon

Mynd: EPA

Vinstri bakvörðurinn fjölhæfi Keane Lewis-Potter er búinn að skrifa undir nýjan samning við Brentford.
Lewis-Potter hefur verið mikilvægur hlekkur í liði Brentford á undanförnum árum og hefur verið funheitur fyrir framan markið á þessari leiktíð.

Hann er kominn með 4 mörk í 11 deildarleikjum þrátt fyrir að spila yfirleitt sem vinstri bakvörður, þó hann hafi líka verið notaður á vinstri kanti og sem sóknartengiliður.

Lewis-Potter er ótrúlega fjölhæfur og getur spilað á öllum vinstri vængnum auk þess að vera öflugur bæði varnar- og sóknarlega á miðjunni.

Hann skoraði tvennu í 4-0 sigri gegn Everton í síðustu umferð í ensku úrvalsdeildinni og hefur hjálpað Brentford upp í sjötta sæti deildarinnar, þar sem liðið er með 17 stig eftir 11 umferðir.

Hann fagnar tvennunni með nýjum langtímasamningi sem gildir til sumarsins 2032. Auk þess hefur félagið möguleika á að virkja eins árs framlengingu til 2033.


Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal11+1028
2Brighton11+1722
3Man City11+822
4Liverpool11+821
5Bournemouth11+418
6Brentford11+917
7Leeds11+517
8Chelsea11016
9Everton11-216
10Tottenham11+115
11Hull City11+214
12Aston Villa11-314
13Newcastle11-313
14Coventry11-812
15Fulham11-211
16Ipswich Town11-711
17Nott. Forest11-69
18Sunderland11-99
19Man Utd11-98
20Crystal Palace11-157
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.