Fotbolti.net
26.11.26 - 22:47
Ívan Guðjón Baldursson

Nóel og félagar án sigurs í næstum þrjá mánuði

Nóel og félagar án sigurs í næstum þrjá mánuði
Canon

Mynd: Álaborg

Nóel Atli Arnórsson er einn af fáum Íslendingum sem tóku þátt í keppnisleikjum í fótbolta í dag.
Hann var í byrjunarliði AaB sem tók á móti Esbjerg í næstefstu deild í Danmörku.

Nóel lék allan leikinn en tókst ekki að koma í veg fyrir þrjú mörk sem gestirnir skoruðu og urðu lokatölur 1-3.

Eftir úrslit dagsins eru liðin jöfn um miðja deild 17 stig eftir 16 umferðir. Álaborg hefur ekki unnið keppnisleik í fótbolta síðan í byrjun september.

Nóel er 20 ára gamall og fékk gult spjald dæmt á sig á 74. mínútu fyrir dýfu, samkvæmt upplýsingum frá Flashscore.

Nóel er yfirleitt í byrjunarliðinu hjá Álaborg, sem lék síðast í efstu deild tímabilið 2024-25.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.