26.11.26 - 22:25
Ívan Guðjón Baldursson
Sambandsdeildin: Sögulegt tap hjá Rúnari og Viktori

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Rúnar Alex Rúnarsson og Viktor Bjarki Daðason voru saman í byrjunarliði FC Kaupmannahafnar sem heimsótti Inter d'Escaldes til Andorra og tapaði afar óvænt 2-0 í Sambandsdeildinni í kvöld.
FCK var sterkara liðið í afar bragðdaufum fyrri hálfleik en Inter leiddi 1-0 í leikhlé svo Bo Svensson, þjálfari FCK, gerði þrefalda skiptingu.
Hann tók Viktor Bjarka af velli en frammistaða Kaupmannahafnar versnaði. Liðið skapaði ekki neitt og fékk hinn reynslumikli Thomas Delaney tvö gul spjöld með stuttu millibili, þremur mínútum áður en liðsfélagi hans Akos Markgraf var líka rekinn í sturtu.
Inter tvöfaldaði forystuna úr vítaspyrnu og tók yfir leikinn spilandi 11 gegn 9, en tókst ekki að bæta þriðja markinu við. Lokatölur urðu því 2-0 og er þetta sögulegur sigur þar sem ekkert félagslið frá Andorra hefur áður náð í stig í deildar- eða riðlakeppni í Evrópu. FCK er með sjö stig eftir tapið.
Kristian Nökkvi Hlynsson kom þá inn af bekknum í naumu tapi FC Twente í Freiburg. Staðan var 1-1 þegar Kristiani var skipt inn eftir um klukkutíma leik og kom sigurmarkið frá Freiburg í uppbótartíma venjulegs leiktíma.
Freiburg og Twente eru jöfn með níu stig eftir þessa innbyrðisviðureign, ásamt Trabzonspor og fleiri félögum. Mohamed Salah skoraði í endurkomusigri tyrkneska liðsins gegn CSKA Sofia í Búlgaríu.
Borac Banja Luka, sem sló Víking R. út í úrslitaleik um sæti í deildarkeppni Sambandsdeildarinnar, komst þá í tveggja marka forystu á heimavelli gegn Atalanta í kvöld, en tókst ekki að halda út.
Endurkoma Atalanta hófst ekki fyrr en undir lokin þegar leikmaður heimamanna fékk að líta rauða spjaldið á 78. mínútu. Átta mínútum síðar setti Nikola Krstovic, sem hefur verið funheitur á tímabilinu, boltann í netið og skömmu eftir það fékk annar leikmaður Borac að líta rauða spjaldið.
Níu leikmann Borac Banja Luka réðu engan veginn við ítölsku gestina sem náðu að jafna metin og gera svo sigurmark í uppbótartíma. Sead Kolasinac jafnaði á 90. mínútu áður en Eljif Elmas setti sigurmarkið. Atalanta er með sjö stig eftir þennan sigur.
Nordsjælland vann þá frábæran endurkomusigur eftir að hafa lent tveimur mörkum undir gegn Panathinaikos, en Sverrir Ingi Ingason var ekki með gríska stórveldinu sökum meiðsla.
CSKA Sofia 1 - 2 Trabzonspor
1-0 Sidny Lopes Cabral ('32 , sjálfsmark)
1-1 Mohamed Salah ('69 )
1-2 Noah Saviolo ('90 )
FC Nordsjaelland 3 - 2 Panathinaikos
0-1 Adriano Jagusic ('45 )
0-2 Elmin Rastoder ('55 )
1-2 Alexander Lind ('61 )
2-2 Victor Kristiansen ('78 , sjálfsmark)
3-2 Alexander Lind ('80 )
Borac BL 2 - 3 Atalanta
1-0 Luka Juricic ('22 )
2-0 Matej Deket ('29 )
2-1 Nikola Krstovic ('86 )
2-2 Davide Zappacosta ('90 )
2-3 Sead Kolasinac ('90 )
Rautt spjald: ,Abel Pascual, Borac BL ('75)
Rautt spjald: Sebastian Herrera, Borac BL ('88)
Hajduk Split 0 - 2 Sint-Truiden
0-1 Samed Bazdar ('45 )
0-2 Shion Shinkawa ('51 )
Inter Escaldes 2 - 0 FC Kobenhavn
1-0 David Lopez ('19 )
2-0 Faysal Chouaib ('59 , víti)
Rautt spjald: ,Thomas Delaney, FC Kobenhavn ('54)
Rautt spjald: Akos Markgraf, FC Kobenhavn ('57)
Gent 1 - 1 Crvena Zvezda
1-0 Tiago Araujo ('26 )
1-1 Matej Gashtarov ('85 )
Freiburg 2 - 1 Twente
1-0 Cyriaque Irie ('11 )
1-1 Younes Taha ('62 )
2-1 Niklas Beste ('90 )
2-1 Matthias Ginter ('90 , Misnotað víti)
Braga 4 - 0 KuPS
1-0 Pau Victor ('18 )
2-0 Fran Navarro ('31 )
3-0 Mario Dorgeles ('71 )
4-0 Jovan Milosevic ('82 )