Fotbolti.net
26.12.25 - 22:17
Brynjar Ingi Erluson

Einkunnir Man Utd og Newcastle: Himnasending frá Arsenal

Ayden Heaven var besti maður Man Utd í kvöld

Ayden Heaven var besti maður Man Utd í kvöld

Canon

Mynd: EPA

Ayden Heaven, varnarmaður Manchester United, var besti maður liðsins er það vann 1-0 sigur á Newcastle United á Old Trafford í kvöld.
Sky Sports gaf Heaven sem var í aðalhlutverki í vörninni 8 í einkunn.

Man Utd fékk Heaven frá Arsenal fyrir tæpu ári síðan og er hann farinn að líta gríðarlega vel út. Sannkölluð himnasending.

Lisandro Martínez, Matheus Cunha og markaskorarinn Patrick Dorgu fá einnig 8 í einkunn frá Sky.

„Ayden Heaven var algerlega stórkostlegur. Þessi ungi maður var magnaður. Hann skallaði allt frá og fékk réttilega knús frá Luke Shaw og þjálfarateyminu eftir leikinn,“ sagði Gary Neville í útsendingu á Sky.

Man Utd: Lammens (7), Heaven (8), Martinez (8), Shaw (7), Dalot (7), Ugarte (7), Casemiro (7), Dorgu (8), Mount (6), Cunha (8), Sesko (6).
Varamenn: Fletcher (6), Yoro (6), Zirkzee (5).

Newcastle: Ramsdale (5), Miley (6), Schar (6), Thiaw (6), Hall (7), Guimaraes (7), Tonali (6), Ramsey (5), Murphy (6), Gordon (6), Woltemade (6).
Varamenn: Joelinton (6), Wissa (6), Barnes (6), Willock (6).
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.