27.01.08 - 12:08
Magnús Már Einarsson
Jean-Alain Boumsong til Lyon (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Lyon hefur fest kaup á varnarmanninum Jean-Alain Boumsong en hann kemur til liðsins frá Juventus á þrjár milljónir evra.
Frá þessu greindu frönsku meistararnir í gær en áður hafði forseti liðsins greint frá því að líklegt væri að Boumsong kæmi til liðsins.
Boumsong sem er 28 ára gamall á 22 landsleiki að baki fyrir Frakka en hann skrifaði undir þriggja og hálfs árs samning við Lyon.
Honum er ætlað að fylla skarð Brasilíumannsins Cleber Anderson sem verður frá út tímabilið vegna meiðsla.

Heimild: Reuters