Fotbolti.net
27.01.08 - 17:34
Magnús Valur Böðvarsson

Milan Baros í Portsmouth (Staðfest)

Milan Baros kominn til Portsmouth

Milan Baros kominn til Portsmouth

Canon

Mynd: Getty Images

Tékkneski sóknarmaðurinn Milan Baros gekk í dag til liðs við Portsmouth sem Hermann Hreiðarsson leikur með. Baros kemur til Portsmouth á lánssamningi frá Lyon út tímabilið
Baros sem hefur átt erfitt með að festa sig í sessi hjá Lyon þekkir ágætlega til í Englandi þar sem hann lék með Liverpool og Aston Villa með ágætum árangri.

Baros stóðst læknisskoðun í dag og er því orðinn löglegur með liðinu sem mætir Manchester United á miðvikudaginn.

Ákvörðun Portsmouth að fá Baros kemur ekki á óvart þar sem þeir þurftu nauðsynlega á sterkum framherja að halda til að leysa John Utaka og Nwanku Kanu af en þeir eru staddir á Afríkumótinu þessa dagana.

Heimild: Skysports

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.