Fotbolti.net
27.01.20 - 11:00
Magnús Már Einarsson

Liverpool byrjað að skipuleggja rútuferð eftir titilinn

Liverpool byrjað að skipuleggja rútuferð eftir titilinn
Canon

Mynd: Getty Images

Þó að Jurgen Klopp og leikmenn Liverpool tali um að titilbaráttunni sé ekki lokið þá eru forráðamenn félagsins nú þegar farnir að skipuleggja fagnaðarlæti í vor.

Allt bendir til þess að Liverpool verði enskur meistari í fyrsta skipti í 30 ár en liðið getur aukið forskot sitt á toppnum í nítján stig þegar það mætir West Ham á miðvikudag.

Ef Liverpool vinnur West Ham á miðvikudag og Southampton á laugardag þá verður liðið með 22 stiga forskot á Manchester City áður en City mætir Tottenham á sunnudag.
Ef bæði Liverpool og City halda sama striki í deildinni þá gæti Liverpool tryggt sér titilinn með jafntefli eða sigri þegar liðin eigast við á Etihad þann 4. apríl.

Sex leikir eru eftir í ensku úrvalsdeildinni þá. Ef Liverpool landar titlinum mun liðið fá bikarinn afhentan eftir síðasta heimaleik, gegn Chelsea laugardaginn 9. maí.

Liverpool mætir Newcastle í lokaumferðinni sunnudaginn 17. maí en daginn eftir er fyrirhugað að leikmenn liðsins keyri um götur borgarinnar með bikarinn.

Margar milljónir söfnuðust saman í Liverpool borg þegar liðið mætti með bikarinn fyrir Meistaradeildina í fyrrasumar og reikna má með einhverju svipuðu í ár.

Því hafa forráðamenn félagsins, í samráði við borgaryfirvöld, strax farið að undirbúa rútuferðina með bikarinn, mánudaginn 18. maí, þó að félagið sé ekki ennþá búið að vinna titilinn.

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal9+924
2Man City9+1021
3Brighton9+1719
4Chelsea9+416
5Everton10+216
6Liverpool9+215
7Brentford9+714
8Bournemouth9+112
9Tottenham9012
10Aston Villa9-312
11Hull City9+111
12Leeds9+111
13Newcastle9-311
14Ipswich Town9-411
15Fulham9-29
16Coventry10-99
17Man Utd9-57
18Crystal Palace9-127
19Nott. Forest9-66
20Sunderland9-105
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.