Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 27. febrúar 2020 08:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Engin stórstjarna hjá Inter Miami - Beðið til sumarsins
Gömul og góð mynd af Cristiano Ronaldo og David Beckham.
Gömul og góð mynd af Cristiano Ronaldo og David Beckham.
Mynd: Getty Images
Það er nóg að gera hjá David Beckham um þessar mundir en verið er að gera allt klárt fyrir þátttöku Inter Miami í bandarísku MLS-deildinni. Beckham stofnaði félagið.

Miami þreytir frumraun sína í MLS-deildini næstkomandi sunnudag gegn Los Angeles FC.

Margar stórstjörnur hafa verið nefndar til sögunnar í tengslum við félag Beckham, en hingað til hefur engin stjórstjarna samið við félagið. Beckham segir við Miami Herald að horft sé til sumarsins upp á leikmenn.

„Ég held að það verði enginn pirraður á að við séum ekki með stórt nafn fyrir fyrsta leik," sagði Beckham.

Edinson Cavani verður laus allra mála hjá Paris Saint-Germain í sumar. Hann hefur verið sterklega orðaður við Inter Miami.

Sjá einnig:
Stór stund fyrir David Beckham á sunnudaginn
Athugasemdir
banner
banner