27.03.08 - 19:08
Magnús Már Einarsson
Shola Ameobi í Stoke á láni (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Stoke City hefur fengið framherjann Shola Ameobi á láni frá Newcastle United.
Þessi 26 ára gamli leikmaður hefur skorað 46 mörk í yfir 100 leikjum með Newcastle en hann hefur hins vegar ekki verið í náðinni hjá Kevin Keegan og aðeins komið tvívegis við sögu síðan hann tók við liðinu.
Ameobi mun væntanlega hoppa beint inn í leikmannahóp Stoke fyrir útileik liðsins gegn Sheffield Wednesday á laugardag.
,,Við þurfum að sýna öllum að við erum að gera okkar besta til að fara upp. Ef þú klikkar af því að þú reynir ekki, þá get ég skilið að fólkið yrði óánægt," sagði Tony Pulis stjóri Stoke við BBC.
Stoke er sem stendur á toppnum í Championship deildinni en liðið er einnig að vonast til að krækja í skoska miðjumanninn Stephen Pearson á láni frá Derby.

Heimild: BBC