Fotbolti.net
27.03.26 - 23:59
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Æfingaleikur: Kjartan Kári með tvennu í Akraneshöllinni

Æfingaleikur: Kjartan Kári með tvennu í Akraneshöllinni
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

ÍA 2 - 2 FH
Mörk ÍA: Markús Páll Ellertsson og Rafael Máni Þrastarson
Mörk FH: Kjartan Kári Halldórsson (2)
ÍA og FH mættust í æfingaleik í Akraneshöllinni í kvöld og endaði leikurinn með 2-2 jafntefli.

FH leiddi með einu marki í leikhléi og var það fyrra mark Kjartans Kára Halldórssonar í leiknum. Tveir nýir ungir leikmenn skoruðu fyrir ÍA í seinni hálfleik, Markús Páll Ellertsson (2006) sem kom frá Triestina í vetur skoraði annað þeirra og Rafael Máni Þrastarson (2007) sem kom frá Fjölni skoraði hitt. Seinna mark Kjartans Kára kom svo úr vítaspyrnu.

Næstu leikir liðanna verða um næstu helgi þegar þau koma inn í Mjólkurbikarinn. FH heimsækir Þór í Bogann næsta laugardag og ÍA fær annað hvort Hauka eða KFR annan mánudag. Í kjölfarið tekur svo Besta deildin við.

Byrjunarlið ÍA: Árni Marinó; Jón Gísli, Baldvin, Rúnar Már, Böðvar; Ísak, Gummi Tóta, Gísli Eyjólfs; Vall, Markús Páll og Viktor Jóns.

Byrjunarlið FH: Jökull; Aron Jóns, Ísak Óli, Tobias, Ísak Atli; Grétar Snær, Arngrímur; Adolf Daði, Kjartan Kári, Arnór Borg og Gils.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.