Liverpool vill Olise - Sancho eða Rashford - Stór nöfn orðuð við Arsenal
   fös 27. mars 2026 12:04
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Sveinn Margeir í KA (Staðfest)
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
Sveinn Margeir Hauksson er mættur í KA en hann kemur á láni frá Víkingi. KA tilkynnir að um lánssamning út tímabilið 2026 sé að ræða.

Sveinn er að snúa aftur í KA en hann spilaði síðast með liðinu 2024. Hann átti þá mjög góðan kafla áður en hann hélt til Bandaríkjanna - var einn allra besti leikmaður liðsins. Eftir það tímabil nýtti hann sér uppsagnarávkæði í samningi sínum og samdi í kjölfarið við Víking.

Á síðasta ári var hann að klára mastersnám í UCLA í Bandaríkjunum og komu meiðsli í veg fyrir að hann spilaði með Víkingi hluta af síðasta sumri.

Dalvíkingurinn, sem er 24 ára, er búinn að ná sér af meiðslunum og mun spila með KA í sumar.




Komnir
Danijel Dejan Djuric frá Króatíu
Diego Montiel frá Vestra
Jeppe Pedersen frá Vestra
Samuel Kroon frá Svíþjóð
Sveinn Margeir Hauksson frá Víkingi á láni
Jakob Héðinn Róbertsson frá Völsungi
Breki Hólm Baldursson frá ÍR (var á láni)
Ívar Arnbro Þórhallsson frá Völsungi (var á láni)
Kári Gautason frá HK (var á láni)
Ívar Logi Jóhannesson frá Hetti
Þórhallur Ási Aðalsteinsson frá Hetti
Dagbjartur Búi Davíðsson frá Þór (var á láni)
Bjarki Fannar Helgason frá Hetti/Hugin (var á láni)
Árni Veigar Árnason frá Hetti/Hugin (var á láni)

Farnir
Ívar Örn Árnason í Breiðablik
Birnir Snær Ingason í Stjörnuna
Bjarni Aðalsteinsson til Danmerkur
Marcel Römer til Danmerkur
Ingimar Torbjörnsson Stöle til Vals
Jonathan Rasheed til Gautaborgar
Viðar Örn Kjartansson á Selfoss
Andri Fannar Stefánsson í Magna
Dagur Ingi Valsson í Keflavík
William Tonning til Svíþjóðar
Slapp
Athugasemdir
banner
banner
banner