Fotbolti.net
27.04.07 - 16:39
Magnús Már Einarsson

Arnar Þór Viðarsson til Graafschap á láni (Staðfest)

Arnar Þór Viðarsson til Graafschap á láni (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hollenska liðið De Graafschap hefur fengið íslenska landsliðsmanninn Arnar Þór Viðarsson að láni frá Twente og gildir samningurinn frá því í sumar og út næsta tímabil.
De Graafschap greindi frá þessu á heimasíðu sinni í dag en liðið er efst í hollensku 1.deildinni og hefur það tryggt sér úrvalsdeildarsæti fyrir næsta tímabil.

,,Við teljum okkur hafa fyllt upp í mikilvæga stöðu í liðinu með því að fá Viðarsson," segir á heimasíðu De Graafschap í dag.

Arnar Þór hefur leikið á fimmta tug landsleikja fyrir Íslendinga og skoraði í þeim tvö mörk en hann hefur verið á mála hjá Twente í um það bil eitt og hálft ár.

Hann hefur hins vegar fengið fá tækifæri á þessu tímabili og einungis leikið tvo deildarleiki en áður en hann kom til Twente var Arnar Þór á mála hjá Lokeren í Belgíu þar sem hann var fastamaður.

Heimild: Heimasíða De Graafschap

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.