27.05.07 - 06:00
Andri Fannar Stefánsson
Mart Poom til Watford (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Mart Poom, markvörðurinn frá Eistlandi, sem hefur verið á mála hjá Arsenal sl. tvö tímabil er genginn til liðs við Watford sem féllu úr ensku úrvalsdeildinni en kaupverðið er óuppgefið.
Poom, sem hefur leikið 112 landsleiki fyrir Eistland kom til Arsenal frá Sunderland í ágúst 2005, þá á láni en samningurinn hans var gerður fullgildur í janúar 2006.
Þessi 35 ára kappi lék aðeins tvo aðalliðsleiki fyrir Arsenal og var frumraun hans í úrvalsdeildinni síðasti leikurinn á tímabilinu.
Poom fyllir skarð Ben Foster hjá Watford sem var á láni þar á tímabilinu en hann heldur nú til Manchester United.

Heimild: BBC