Andri Ólafs: Féll okkar megin í dag
Auglýsing

Andri Ólafsson þjálfari ÍBV

Mynd: Fótbolti.net - Einar Ásgeirsson

Andri Ólafsson þjálfari ÍBV

Mynd: Fótbolti.net - Einar Ásgeirsson

<i>„Þetta féll okkar megin í dag en mín fyrstu viðbrögð eru í rauninni þau eins og í mörgum af okkar leikjum að við sköpum öll færin sama hvort það sé fyrir þær eða okkur. Þær fá færi því við gerum einhverja algjöra þvælu en við hefðum bara átt að vera búin að skora miklu fleiri mörk.“</i> Sagði Andri Ólafsson þjálfari ÍBV um sín fyrstu viðbröðg eftir 2-1 sigur ÍBV á Keflavík fyrr í kvöld.
Leikurinn markar endapunkt á tveggja leikja taphrinu hjá ÍBV og fer liðið því væntanlega glatt í Herjólf heim á leið.
„Já nákvæmlega og bara vonandi að við náum að halda okkur á runni og gera aðeins betur.“
Hvað vill Andri sjá sitt lið gera betur?
„Í fyrri hálfleik þá finnst mér við spla margoft upp framhjá bakvörðunum og í góð færi, þær sparka langt fram og öflugur framherji sem keyrir bara í gegn og skorar og staðan 1-1 í hálfleik í staðin fyrir að við séum komin í aðeins þægilegri stöðu. Þannig að einföldu hlutina getum við gert betur en við erum líka að reyna að spila út frá marki og viljum það sem kostar mistök.“
Sagði Andri en allt viðtalið má sjá hér að ofan.