Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 27. maí 2022 16:00
Elvar Geir Magnússon
Býst við að Smit og Pedersen verði klárir eftir landsleikjagluggann
Patrick Pedersen.
Patrick Pedersen.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Valsmenn hafa tapað þremur leikjum í röð, gegn Stjörnunni og Víkingi í Bestu deildinni og svo bikarleiknum gegn Breiðabliki sem endaði 6-2 fyrir Kópavogsliðið.

Sjá einnig:
Heitt undir Heimi?

Sóknarmaðurinn Patrick Pedersen hefur ekki spilað í þessum leikjum en hann meiddist í upphitun fyrir Stjörnuleikinn.

Þá fór markvörðurinn Guy Smit meiddur af velli gegn Víkingi og var ekki í leikmannahópnum í gær.

Eftir leikinn í gær sagði Heimir Guðjónsson, þjálfari Vals, að hann ætti von á því að báðir myndu snúa aftur eftir landsleikjagluggann.

Valur heimsækir Fram í næstu umferð á sunnudaginn, eftir það tekur við landsleikjahlé og næsti leikur verður heimaleikur gegn Breiðabliki þann 16. júní.
Heimir Guðjóns: Hlýtur að vera met
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner
banner