Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   fös 27. maí 2022 12:31
Elvar Geir Magnússon
Sjáðu Galdramarkið og hin mörkin sjö úr Kópavoginum
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Breiðablik heldur áfram að fljúga með himinskautum en liðið rúllaði yfir Val í seinni hálfleik í 32-liða úrslitum Mjólkurbikarsins í gær. Ísak Snær Þorvaldsson getur ekki hætt að skora og gerði tvö mörk og þá var hinn sextán ára gamli Galdur Guðmundsson meðal markaskorara, hann skoraði glæsimark í stöng og inn.

RÚV sýndi leikinn í beinni útsendingu og má sjá mörkin, í lýsingu Þorkels Gunnars Sigurbjörnssonar, hér að neðan.

Breiðablik 6 - 2 Valur
1-0 Omar Sowe ('13 )
1-1 Birkir Heimisson ('15 )
1-2 Tryggvi Hrafn Haraldsson ('19 )
2-2 Viktor Örn Margeirsson ('42 )
3-2 Ísak Snær Þorvaldsson ('58 )
4-2 Ísak Snær Þorvaldsson ('71 )
5-2 Galdur Guðmundsson ('74 )
6-2 Mikkel Qvist ('81 )
Lestu um leikinn



KA 4 - 1 Reynir S.
1-0 Jakob Snær Árnason ('15 )
1-1 Elton Renato Livramento Barros ('24 )
2-1 Steinþór Freyr Þorsteinsson ('56 )
3-1 Þorri Mar Þórisson ('60 )
4-1 Hallgrímur Mar Steingrímsson ('88 )
Lestu um leikinn


Athugasemdir
banner
banner