Fotbolti.net
27.05.26 - 21:01
Brynjar Ingi Erluson

Crystal Palace er Sambandsdeildarmeistari 2026

Mateta gerði sigurmark Palace

Mateta gerði sigurmark Palace

Canon

Mynd: EPA

Crystal Palace 1 - 0 Rayo Vallecano
1-0 Jean-Philippe Mateta ('51 )
Crystal Palace er Sambandsdeildarmeistari árið 2026 eftir að hafa unnið Rayo Vallecano, 1-0, í úrslitum keppninnar á Red Bull-Arena í Leipzig í kvöld. Sigurinn þýðir að Palace mun spila í deildarkeppni Evrópudeildarinnar á næstu leiktíð.

Palace hafnaði í 15. sæti ensku úrvalsdeildarinnar og vissi því að þetta væri eini möguleiki liðsins á að komast í Evrópukeppni fyrir næsta tímabil.

Rayo Vallecano var í nákvæmlega sömu stöðu eftir að hafa rétt misst af sæti í Sambandsdeild Evrópu með því að hafna í 8. sæti í La Liga, aðeins stigi á eftir Getafe.

Það mátti alveg finna stressið í báðum liðum í fyrri hálfleiknum og gáfu þau fá færi á sér, en Tyrick Mitchell fékk eitt dauðafæri undir lok hálfleiksins en skallaði boltann framhjá markinu eftir frábæra fyrirgjöf Adam Wharton.

Palace fékk draumabyrjun í síðari hálfleiknum. Adam Wharton átti hörkuskot fyrir utan teig sem argentínski markvörðurinn Augusto Batalla varði út á Jean-Philippe Mateta sem skóflaði boltanum í netið.

Allt saman skrifað í skýin hjá Palace, en Mateta var nálægt því að yfirgefa Lundúnafélagið undir lok janúargluggans. Hann var með samkomulag við Milan, en ítalska félagið hætti við á síðustu stundu sem reyndist heppilegt fyrir Palace.

Palace gat skorað annað mark stuttu síðar en liðið setti boltann þrisvar sinnum í stöngina í sömu sókninni. Yeremy Pino tók aukaspyrnu sem fór í stöngina og í hina áður en Mateta setti boltann aftur í stöngina. Ótrúlegt að boltinn hafi ekki farið í netið.

Enska liðið hélt áfram að skapa sér. Mateta og Munoz fengu góð færi áður en Rayo fór að ógna.

Tíminn var að renna frá Rayo sem reyndi allt til þess að tryggja sér að minnsta kosti framlengingu. Miðvörðurinn Florian Lejeune komst næst því á 88. mínútu er aukaspyrna kom inn á teiginn en skallinn framhjá.

Dean Henderson hafði í raun ekki mikið að gera í markinu og tókst Palace að halda þetta út og tryggja sér fyrsta Evróputitilinn í sögu félagsins.

Oliver Glasner, stjóri Palace, vann tvo titla á tveimur tímabilum og kveður félagið sem goðsögn, en hann mun yfirgefa félagið þegar samningur hans rennur út í næsta mánuði.
Oliver Glasner kvaddi Palace með stæl

Oliver Glasner kvaddi Palace með stæl

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.