27.06.06 - 08:19
Guðmundur Dagur Ólafsson
Blackburn fær markvörð frá Gillingham (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Blackburn hafa gert fjögurra ára samning við Jason Brown en hann hefur verið hjá Gillingham síðan árið 2001.
Hann mun ganga formlega til liðs við félagið þann 1.júlí næstkomandi en samningur hans við Gillingham rann út nú í lok síðustu leiktíðar og náðist ekki samkomulag um nýjan samning.
Brown, sem er 24 ára gamall, spilaði sinn fyrsta landsleik fyrir Wales í maí gegn Trínídad og Tóbagó en sem unglingur var hann á mála hjá Charlton Athletic.
John Williams, stjórnarformaður Blackburn, staðfesti jafnframt að félagið hafi ekki gert tilboð í David Nugent framherja Preston en hann hefur verið orðaður við Blackburn undanfarið.