Fotbolti.net
27.06.07 - 10:43
Magnús Már Einarsson

Van Bronckhorst til Feyneoord (Staðfest)

Van Bronckhorst til Feyneoord (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Barcelona hefur samþykkt að láta vinstri bakvörðinn Giovanni van Bronckhorst fara til Feyenoord í heimalandinu Hollandi.
Þessi 32 ára gamli leikmaður framlengdi samning sinn við Barcelona til ársins 2008 í desember síðastliðnum en munnlegt samkomulag var um að hann mætti fara ef hans fyrrum félag Feyenoord reyndi að fá hann.

Þessi fyrrum leikmaður Rangers og Arsenal var hjá Feyenoord og eftir að hafa verið á Bretlandseyjum fór hann til Spánar árið 2003.

Bronckhorst var í fjögur ár hjá Barcelona, vann spænsku deildina tvívegis og Evrópukeppnina 2006.

Heimild: Reuters

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.