27.06.07 - 13:27
Magnús Már Einarsson
Hallur Ásgeirsson lánaður í ÍH (Staðfest)
Félagaskipti númer 22 á ferlinum

Hallur í leik með Hetti gegn ÍR á dögunum.

Mynd: Agl.is/Gunnar Gunnarsson

Hallur í leik með Hetti gegn ÍR á dögunum.

Mynd: Agl.is/Gunnar Gunnarsson
Sóknarmaðurinn Hallur Kristján Ásgeirsson úr Hetti Egilsstöðum hefur verið lánaður til ÍH í annarri deildinni. Þetta er í 22.sinn sem Hallur skiptir um félag á um það bil tíu árum en hann á íslandsmetið í félagaskiptum.
Hallur sem er 29 ára gamall fór á kostum þegar Höttur sigraði þriðju deildina síðastliðið sumar en hann skoraði 22 mörk í 17 leikjum. Hann hefur komið við sögu í einum leik með Hetti á leiktíðinni.
Hallur ætti að vera orðinn löglegur með ÍH á laugardaginn þegar að liðið tekur á móti Völsungi í annarri deildinni.
Hallur ætti að vera orðinn löglegur með ÍH á laugardaginn þegar að liðið tekur á móti Völsungi í annarri deildinni.
