27.06.07 - 16:02
Stefán Guðberg Sigurjónsson
Aaron Hughes til Fulham (Staðfest)

Aaron Hughes í leik með Aston Villa

Mynd: Getty Images

Aaron Hughes í leik með Aston Villa

Mynd: Getty Images
Lawrie Sanchez hefur gengið frá fyrstu kaupunum sínum sem knattspyrnustjóri Fulham er hann fékk til sín varnarmanninn Aaron Hughes frá Aston Villa.
Kaupverðið er ein milljón punda og skrifaði þessi fyrirliði norður-írska landsliðsins undir fjögurra ára samning við Lundúnarfélagið.
Hughes hefur spilað yfir 50 deildarleiki fyrir Villa síðan hann kom frá Newcastle árið 2005, einnig fyrir eina milljón punda.
,,Ég er mjög ánægður með að hafa fengið Aaron til Fulham. Sem fyrirliði minn þegar ég var stjóri hjá Norður-Írlandi sá ég greinilega leiðtogahæfileika hans og gæði hans sem leikmaður. Ég er því ánægður með að hann sé mín fyrstu kaup í sumar,” sagði Sanchez.

Heimild: Sky