mán 27. júní 2022 07:30
Ívan Guðjón Baldursson
Leeds að kaupa ungan miðjumann frá City
Mynd: Getty Images

Leeds United er að kaupa ungan miðjumann af Manchester City. Darko Gyabi er 18 ára gamall og mun Leeds greiða 5 milljónir punda fyrir hann samkvæmt Fabrizio Romano.


Gyabi á aðeins eitt ár eftir af samningi sínum við Man City en þykir mikið efni. Hann spilaði ellefu leiki með City í varaliðadeildinni á síðustu leiktíð og tókst að skora eitt mark og eiga þrjár stoðsendingar.

Gyabi fer yfir til Leeds en er ekki partur af félagaskiptum Kalvin Phillips til CIty. 

Englandsmeistararnir eru taldir borga um 50 milljónir punda fyrir Phillips sem mun taka stöðu Fernandinho í leikmannahópinum.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner