Fotbolti.net
15.06.26 - 16:41
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Meiðslabras á HK

Brynjar Snær Pálsson er á leið í aðgerð.

Brynjar Snær Pálsson er á leið í aðgerð.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Lengjudeildin
Þeir Brynjar Snær Pálsson og Róbert Quental Árnason, leikmenn HK, glíma við erfið meiðsli og er óvíst hvenær þeir geta byrjað að spila aftur. Brynjar hefur ekkert spilað til þessa á tímabilinu og Róbert hefur ekki verið í hóp síðustu fimm leiki.
„Brynjar er á leið í aðgerð í næstu viku, þetta tengist mjöðminni. Róbert Quental kom sprækur inn til okkar frá Leikni en svo hefur hann verið frá síðustu vikur vegna meiðsla í hné. Hann er á leið til bæklunarlæknis í skoðun til að sjá hvað sé að hrjá hann," segir Gunnar Heiðar Þorvaldsson sem er þjálfari HK.

Þorvaldur Smári Jónsson kom þá meiddur úr verkefni með U19 landsliðinu og verður eitthvað frá.

HK hefur ekki getað teflt fram sama byrjunarliði tvo leiki í röð í mótinu. Það eru þó einhverjar jákvæðar fréttir. Arnþór Ari Atlason, fyrirliði liðsins, er að komast almennilega af stað eftir að hafa slitið liðbönd í ökkla skömmu fyrir mót.

„Það er ánægjulegt að Arnþór kláraði síðasta leik, fyrsti leikurinn sem hann klárar. Svo hafa verið minni meiðsli hjá mönnum sem hefur gert það að verkum að við höfum ekki alveg náð takti," segir þjálfarinn.
Róbert Quental er meiddur á hné.

Róbert Quental er meiddur á hné.

Canon

Mynd: HK

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Þróttur R.9+1119
2Afturelding8+816
3Fylkir8+215
4Leiknir R.9+215
5HK9015
6Vestri9-113
7Grótta7-112
8Njarðvík9+311
9Grindavík7-27
10Ægir8-57
11ÍR8-67
12Völsungur9-115
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.