Fotbolti.net
15.06.26 - 18:32
Brynjar Ingi Erluson

Nunez er ekki á leið aftur til Liverpool

Nunez er ekki á leið aftur til Liverpool
Canon

Mynd: EPA

Darwin Nunez er ekki að snúa aftur til Liverpool frá Al Hilal, en þetta segir Fabrizio Romano í dag.
Virtir fjölmiðlar í Úrúgvæ greindu frá því í morgun að Nunez væri á leið aftur til Liverpool og að félagið myndi tilkynna það formlega eftir heimsmeistaramótið.

Nunez, sem lék með Liverpool frá 2022 til 2025 og varð þar Englandsmeistari, var ekki allra. Margir stuðningsmenn elskuðu hann fyrir ástríðuna sem hann sýndi inni á vellinum en aðrir þoldu hann illa vegna færanýtingarinnar.

Fabrizio Romano segir ekkert hæft í því að Nunez sé á leið aftur til Liverpool, en það hefur hann eftir fólki í innsta hring hjá framherjanum.

Þessi 26 ára gamli sóknarmaður er samningsbundinn Al Hilal til 2028, en rætt hefur verið um að rifta samningnum á næstu vikum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.