Fotbolti.net
15.06.26 - 17:04
Kári Snorrason

Líkleg byrjunarlið Víkings og KR - Landsliðsmennirnir snúa aftur

Gunnar Vatnhamar og Aron Sigurðarson eru báðir í líklegum byrjunarliðum.

Gunnar Vatnhamar og Aron Sigurðarson eru báðir í líklegum byrjunarliðum.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Stórleikur Víkings og KR fer fram annað kvöld á Víkingsvelli. Um er að ræða tvö efstu lið deildarinnar. Topplið Víkings er með þriggja stiga forystu á KR.

Jóhann Ingi Jónsson flautar leikinn af stað 19:15 og verður fróðlegt að sjá hvernig byrjunarliðin verða þegar þau eru tilkynnt klukkutíma áður.

Því er vel við hæfi að setja á sig spágleraugun og spá í spilin fyrir byrjunarlið leiksins. Við tippum á að bæði Óskar Hrafn Þorvaldsson og Sölvi Geir Ottesen nái að stilla upp nánast sínum sterkustu liðum.


Við spáum því að Sölvi Geir Ottesen geri tvær breytingar frá 2-1 bikarsigrinum gegn ÍA síðastliðinn föstudag. Gunnar Vatnhamar og Gylfi Þór Sigurðsson snúa aftur í væntanlegt byrjunarlið.

Vatnhamar er stærsta spurningamerkið, Sölvi sagði í viðtali við Fótbolta.net fyrr í dag að Gunnar ætti að vera klár. Hann meiddist í leik með Færeyjum í landsleikjahléinu og það ætti að vera ljóst á æfingu í dag hvort hann verði leikfær. Tarik Ibrahimagic og Sveinn Gísli Þorkelsson geta fyllt í hans skarð ef Gunnar verður ekki klár.

Kemur í ljós í dag hvort lykilmaður Víkings verði með
TENGT EFNI

Kemur í ljós í dag hvort lykilmaður Víkings verði með



Þá snýr Gylfi Þór Sigurðsson aftur í liðið en hann var ekki með gegn ÍA þar sem hann var að koma úr landsleikjaverkefni. Hann spilaði rúmar tíu mínútur í 3-0 tapi gegn Argentínu og ætti því að vera hraustur.

Ármann Ingi heldur sæti sínu í líklegu byrjunarliði okkar en þar er verið að tippa á að Sölvi vilji hafa áræðni og hraða á vængnum til að refsa háu línu KR-inga. Erlingur Agnarsson gerir jafnframt tilkall í vængstöðuna.

Mynd: Kári Snorrason


Hjá KR er það helst að Arnór Ingvi Traustason og Ástbjörn Þórðarson snúa aftur eftir meiðsli. Arnór fór meiddur af velli gegn KA í síðasta leik en Ástbjörn hefur verið frá í rúman mánuð.

Fari svo að Ástbjörn verði ekki klár má búast við því að Michael Akoto fylli í hans skarð hægra megin. Akoto er þó takmarkaðri sóknarlega en Óskar hefur treyst á hann í fjarveru Ástbjarnar.

Þá verður jafnframt áhugavert að sjá ef Sigurður Breki fær tækifærið, eins og við tippum á, hvernig hann mætir feiknasterku miðju Víkinga. Stefán Árni Geirsson og Alexander Rafn Pálmason gera þá tilkall í sömu stöðu.

Alexander hefur verið frá í síðustu leikjum en er að koma til baka eftir meiðsli. Spilaði með U19 landsliðinu í landsleikjaglugganum í síðustu viku.
Gylfi snýr aftur eftir landsleikjaverkefnið.

Gylfi snýr aftur eftir landsleikjaverkefnið.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ármann hefur farið vel af stað í liði Víkings í upphafi tímabils.

Ármann hefur farið vel af stað í liði Víkings í upphafi tímabils.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Víkingur hefur unnið níu deildarleiki í röð.

Víkingur hefur unnið níu deildarleiki í röð.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Sigurður Breki er í líklegu byrjunarliði KR.

Sigurður Breki er í líklegu byrjunarliði KR.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ástbjörn Þórðarson er að snúa til baka eftir meiðsli.

Ástbjörn Þórðarson er að snúa til baka eftir meiðsli.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Jafnframt að snúa til baka.

Jafnframt að snúa til baka.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Amin verið sjóðheitur í upphafi tímabils.

Amin verið sjóðheitur í upphafi tímabils.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.