Arsenal keppir við Spurs um Eze - Liverpool ræðir um Guehi - Man Utd skoðar Warren Zaire-Emery
   fös 27. júní 2025 11:18
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Víkingur að kaupa Óskar Borgþórs
Úr ienum af níu leikjum Óskars með U21 landsliðinu.
Úr ienum af níu leikjum Óskars með U21 landsliðinu.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Víkingur er samkvæmt heimildum Fótbolta.net að ganga frá kaupum á Óskari Borgþórssyni frá norska félaginu Sogndal. Hann getur fengið leikheimild þegar félagaskiptaglugginn opnar 17. júlí.

Óskar var orðaður við Víkinga í vetrarglugganum en fyrirspurn Víkings var þá hafnað af Sogndal.

Óskar er 21 árs kantmaður sem fór til Noregs frá uppeldisfélaginu Fylki sumarið 2023. Hann var á þeim tímapunkti bæði orðaður við Breiðablik og Víking.

Samkvæmt Transfermarkt Hefur hann komið að fjórum mörkum í 43 leikjum með Sogndal sem er í næst efstu deidl í Noregi.

Athugasemdir
banner
banner
banner