Fotbolti.net
27.07.06 - 21:10
Þórður Már Sigfússon

Queudrue til Fulham (Staðfest)

Queudrue mun klæðast hvítri treyju Fulham á komandi tímabili

Queudrue mun klæðast hvítri treyju Fulham á komandi tímabili

Canon

Mynd: Getty Images

Fulham hefur fest kaup á franska varnarmanninum Franck Queudrue frá Middlesborough, fyrir óuppgefna upphæð.
Queudrue, sem er vinstri bakvörður, skrifaði undir fjögurra ára samning við Lundúnarliðið og er í skýjunum með að hafa gengið til liðs við Fulham.

,,Ég átti frábær ár hjá Middlesborough, en mér fannst tími til kominn að halda eitthvert annað. Ég hitti Chris Coleman og varð heillaður af metnaði hans gagnvart félaginu og framtíðarsýn hans."

Coleman, knattspyrnustjóri Fulham var að vonum ánægður með nýja leikmann félagsins..

,,Hann er hæfileikaríkur leikmaður og ég veit að hann mun gera okkur betri varnarlega séð."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.