27.07.07 - 06:00
Hafliði Breiðfjörð
Paul McShane í raðir Sunderland (Staðfest)

Roy Keane stjóri Sunderland.

Mynd: Getty Images

Roy Keane stjóri Sunderland.

Mynd: Getty Images
Sunderland hafa gengið frá kaupum á Paul McShane frá WBA en Roy Keane stjóri liðsins hafði í gær staðfest að félögin ættu í viðræðum. Kaupverðið er ein og hálf milljón punda sem gæti hækkað í 2,5 milljón eftir hversu mikið hann mun leika með liðinu og hvort það heldur sæti sínu í ensku úrvalsdeildinni.
Keane hefur verið að leitast eftir að styrkja vörnina hjá sér í sumar og sneri sér að McShane eftir að hafa mistekist að fá Leighton Baines frá Wigan. Hann þekkir McShane vel því saman voru þeir leikmenn hjá Manchester United.
McShane sem á sér alnafna sem leikur hér á landi með Grindavík gekk í raðir WBA frá United fyrir ári síðan og var lykilmaður í liði WBA sem tókst ekki að tryggja sér sæti í ensku úrvalsdeildinni.
Hann verður sjöttu kaup Keane í sumar í kjölfar komu Greg Halford, Russell anderson, Michael Chopra, Kieran Richardson og Dickson Etuhu.

Heimild: Sky