27.07.07 - 11:49
Magnús Már Einarsson
Simao Sabrosa til Atletico Madrid (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Atletico Madrid hefur keypt portúgalska kantmanninn Simao Sabrosa frá Benfica á 20 milljónir evra en auk upphæðarinnar getur portúgalska liðið fengið tvo leikmenn frá Atletico í skiptum.
Simao gerði fjögurra ára samning við Atletico eftir að hafa staðist læknisskoðun í morgun en hann verður kynntur á heimavelli félagsins í dag.
Í fyrra var Simao nálægt því að ganga til liðs við Liverpool og Valencia en ekkert varð úr því á þeim tíma.
Þessi kaup Atletico Madrid þýða að liðið hefur eytt um það bil 60 milljónir evra í leikmenn í sumar og eru forráðamenn félagsins stórhuga eftir vonbrigði síðasta tímabils þar sem að liðið endaði í sjöunda sæti.

Heimild: Reuters