27.07.07 - 15:09
Magnús Már Einarsson
Keflavík kaupir Pétur Heiðar frá Þór (Staðfest)
Stefán Örn frá út tímabilið?

Keflvíkingar fá liðsstyrk.

Mynd: Fótbolti.net - Ómar Vilhelmsson

Keflvíkingar fá liðsstyrk.

Mynd: Fótbolti.net - Ómar Vilhelmsson
Keflvíkingar hafa keypt miðju og sóknarmanninn Pétur Heiðar Kristjánsson frá Þór. Hann hefur þegar fengið leikheimild með liðinu þannig að hann gæti leikið sinn fyrsta leik fyrir Keflvíkinga gegn FH á morgun.
Pétur sem er 24 ára hefur komið við sögu í öllum tólf leikjum Þórsara í fyrstu deildinni það sem af er sumri.
Kristján Guðmundsson þjálfari Keflvíkinga þekkir til Péturs en hann þjálfaði leikmanninn hjá Þór á sínum tíma.
,,Ég þekki til hans og hann er mjög góður fótboltamaður. Þetta er mikill liðsstyrkur fyrir okkur," saðgi Kristján við Fótbolta.net í dag.
Sóknarmaðurinn Stefán Örn Arnarson meiddist aftan í læri í vikunni og svo gæti farið að hann leiki ekki meira með Keflvíkingum á tímabilinu. Því ákváðu Keflvíkingar að fá Pétur til liðs við sig.
,,Stefán Örn meiddist á æfingu á þriðjudaginn og það er óvíst hvort að hann geti tekið meira þátt í mótinu með okkur þannig að við urðum að bregðast við," sagði Kristján en hann vill ekki útiloka að fleiri leikmenn muni koma til Keflvíkinga áður en að félagaskiptaglugginn lokar næstkomandi þriðjudag.