27.07.07 - 16:11
Magnús Már Einarsson
Wilhelmsson til Bolton á láni (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Christian Wilhelmsson kantmaður Nantes og sænska landsliðsins hefur skrifað undir lánssamning við Bolton út tímabilið en frá þessu var gengið í dag.
Wilhelmsson sem er 27 ára skrifaði undir samninginn í dag en bíður ennþá eftir leikheimild sem þýðir að hann getur ekki leikið með Bolton í æfingaleik gegn Tranmere á morgun.
Wilhelmsson sem var í láni hjá Roma síðari hluta síðustu leiktíðar ætti hins vegar að geta leikið sinn fyrsta leik með Bolton þegar að liðið mætir Espanyol á heimavelli eftir viku.
Þessi knái kantmaður var orðaður við Manchester City, Middlesbrough og Tottenham í sumar en hann ákvað á endanum að semja við Bolton.

Heimild: Sky