Jón Sveins rekinn frá Fram (Staðfest)

Jón Sveinsson lætur af störfum.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ragnar Sigurðsson hefur tekið við stjórn liðsins.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Jón Sveinsson lætur af störfum.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Jón Sveinsson hefur verið látinn fara frá Fram en þetta kemur fram í yfirlýsingu frá félaginu. Hans síðasti leikur við stjórnvölinn var 4-0 tap gegn Stjörnunni í gær.
Í tilkynningunni kemur fram að Ragnar Sigurðsson, sem var aðstoðarmaður Jóns, og Aðalsteinn Aðalsteinsson, sem er yfirmaður fótboltamála hjá félaginu, hafi tekið við stjórn liðsins til bráðabirgða en ekki er ljóst hversu lengi það verður. Þórhallur Víkingsson sem var einnig aðstoðarmaður Jóns lætur af störfum samhliða honum.
Fram er í fallsæti og hefur tapað fjórum leikjum í röð. Liðið hefur fengið á sig flest mörk allra liða og auk þess ekki skorað í fjórum leikjum í röð.
Fram á leik gegn Fylki þann 8. ágúst svo það er nokkuð langt í næsta leik .

Jón er einn leikjahæsti leikmaður í sögu Fram og varð þrisvar sinnum Íslandsmeistari og þrisvar sinnum bikarmeistari með félaginu á 9. áratugnum.
Hann tók við sem þjálfari Fram fyrir tímabilið 2019. Liðið endaði í sjöunda sæti 1. deildar á hans fyrsta tímabili, í þriðja sæti ári síðar og vann svo deildina 2021. Í fyrra hélt liðið sæti sínu í Bestu deildinni, hafnaði í níunda sæti.
Tilkynning Fram:
Stjórn Knattspyrnudeildar FRAM hefur tekið þá erfiðu ákvörðun að semja um starfslok við Jón Þóri Sveinsson sem þjálfara meistaraflokksliðs karla.
Jón Þórir, eða Nonni, er gríðarlega stór og mikilvægur partur af sögu FRAM, bæði sem leikmaður og þjálfari. Hann spilaði vel yfir 300 leiki fyrir FRAM og tók svo við þjálfun karlaliðs FRAM haustið 2018 á erfiðum tímum og afrekaði það sem allir FRAMarar biðu eftir, að koma liðinu aftur á meðal þeirra bestu. Alls hefur Nonni stýrt liðinu í fimm ár við góðan orðstír.
Breyting sem þessi er aldrei auðveld, né þægileg og á það sérstaklega við í þessu tilfelli. Það er þungt skref fyrir alla sem koma að knattspyrnudeild FRAM að nú sé komið að leiðarlokum. Seint verður Nonna þakkað nægilega fyrir hans metnað, vinnu og umhyggju fyrir félaginu og hvetjum við alla FRAMara til að sameinast í þökkum fyrir hans mikla og mikilvæga framlag.
Stjórn knattspyrnudeildar telur breytingar nauðsynlegar á þessum tímapunkti til að tryggja áframhaldandi veru liðsins í Bestu deildinni. Ásamt Nonna lætur Þórhallur Víkingsson einnig af störfum og þökkum við honum fyrir hans framlag. Við óskum Nonna og Þórhalli alls hins besta í framtíðar verkefnum.
Ragnar Sigurðsson og Aðalsteinn Aðalsteinsson hafa þegar tekið við stjórn liðsins.
Sjá einnig:
Tíu þjálfarar sem Fram gæti reynt við