27.07.26 - 14:22
Elvar Geir Magnússon
Ætla að koma í veg fyrir að aðhlynningar markvarða séu misnotaðar

Svissneski markvörðurinn Yann Sommer fær aðhlynningu.

Mynd: EPA

Pierluigi Collina, yfirmaður dómaramála hjá FIFA.

Í enska fótboltanum á að taka á því þegar þjálfarar nota aðhlynningu markvarða sem taktískt leikhlé. Howard Webb yfirmaður dómaramála Englands hefur fundað með sínum mönnum um það hvernig tækla eigi þetta vandamál.
Niðurstaðan er sú að besta lausnin sé að útileikmaður þurfi að yfirgefa völlinn ef markvörðurinn fær aðhlynningu.
Ef dómari gefur merki um að sjúkraþjálfarar megi koma inn til að hlúa að markverðinum þá hafi stjórinn tíu sekúndur til að velja leikmann sem þarf að yfirgefa völlinn í eina mínútu. Hann tilkynni fjórða dómaranum val sitt.
Ef leikmaður hefur ekki verið valinn innan tíu sekúndna verður fyrirliðinn að fara tímabundið af velli. Búið er að sækja um leyfi til að taka upp þessa reglubreytingu í tilraunaskyni.

Í algjörum forgangi
Á undanförnum árum hefur það færst í aukana að þjálfarar nýti sér aðhlynningu markvarða til að taka taktísk leikhlé. Það hefur orðið algengt að markvörður fái sér skyndilega sæti á vellinum og biðji um sjúkraþjálfara á meðan allir aðrir leikmenn hlaupa að varamannabekknum og taka við taktískum leiðbeiningum. Um leið og leiðbeiningum hefur verið komið til skila fer markvörðurinn upp og heldur leik áfram.
Aðhlynningar markvarða hafa einnig verið notaðar til að trufla takt andstæðingana þegar þeir eru með yfirhöndina í leikjum.
Pierluigi Collina, yfirmaður dómaramála hjá FIFA, sagði nýlega að það væri í algjörum forgangi að finna leiðir til að koma í veg fyrir að aðhlynningar markvarða væru misnotaðar með þessum hætti.