27.07.26 - 13:00
Elvar Geir Magnússon
Bosníumaður dæmir seinni leik Víkings

Antoni Bandic dæmir leikinn.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Villi Alvar dæmir í Rúmeníu.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Antoni Bandic dæmir leikinn.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Á miðvikudaginn verður seinni leikur Víkings gegn ísraelsku meisturunum í Hapoel Be'er Sheva í forkeppni Meistaradeildarinnar. Víkingur vann fyrri leikinn 2-1 í Fossvogi en leikurinn á miðvikudag verður í Szombathely í Ungverjalandi.
Dómarateymi leiksins kemur frá Bosníu en aðaldómari verður Antoni Bandic sem hefur verið að klifra upp metorðastigann hjá UEFA. Bandic hefur áður dæmt leik hjá íslenskum liðum og dæmdi meðal annars 2-2 jafnteflisleik Íslands og Wales í Þjóðadeildinni 2024.
VAR dómari leiksins er hinsvegar ítalskur, Gianluca Aureliano.

TENGT EFNI
Dómarinn sem dæmdi mark Kristals af dæmir í kvöld - „Þetta er algjört kjaftæði"
Sambandsdeildarliðin
Þrjú íslensk lið verða í eldlínunni í forkeppni Sambandsdeildarinnar, seinni viðureignir liðanna, á fimmtudag og ljóst er hvaða dómarar munu dæma þá leiki.
Stjarnan heimsækir Ilves Tampere frá Finnlandi en Garðbæingar unnu 1-0 sigur í fyrri leiknum. Mervan Bejtullahu frá Kosóvó dæmir leikinn í Tampere.
Vestri tekur á móti RFS frá Lettlandi á Þróttarvelli en RFS er með 4-1 forystu eftir fyrri leikinn. Kýpverjinn Menélaos Andoníou verður þá með flautuna.
Valur vann fyrri leikinn gegn Zrinjski Mostar 1-0 en dómarar seinni leiksins sem fram fer í Bosníu og Hersegóvínu koma frá Georgíu. Aleko Aptsiauri verður aðaldómari.
Villi Alvar dæmir í Rúmeníu
Vilhjálmur Alvar Þórarinsson verður að störfum í Rúmeníu og dæmir leik Cluj og Alashkert frá Armeníu. Gylfi Már Sigurðsson og Guðmundur Ingi Bjarnason verða aðstoðrardómarar. Ívar Orri Kristjánsson verður fjórði dómari.
Þórir Hákonarson, bæjarstjóri og fyrrum framkvæmdastjóri KSÍ, verður eftirlitsmaður í Danmörku þegar Nordsjælland mætir sænska liðinu GAIS.