Fotbolti.net
27.07.26 - 13:30
Elvar Geir Magnússon

Mbappe stakk niður penna - Sársauki sem mun vara í einhvern tíma

Mbappe og félagar töpuðu í undanúrslitum.

Mbappe og félagar töpuðu í undanúrslitum.

Canon

Mynd: EPA

Kylian Mbappe viðurkennir að hann verði í sárum í einvern tíma efir að Frakkland féll út í undanúrslitum HM, með því að tapa 2-0 gegn Spáni.

Mbappe hefur sent frá sér opið bréf sem telur 250 orð en hann vann gullskó HM með tíu mörk. Hann er markahæsti leikmaður í sögu HM með 22 mörk.

Mbappe er í sumarfríi en bráðlega kemur hann til móts við samherja sína og bý sig undir nýtt tímabil með Real Madrid, undir stjórn Jose Mourinho.
„Mánuður fullur af tilfinningum og stolti af því að bera liti Frakklands. Og umfram allt: fullur af ástríðu – sömu ástríðu og drífur okkur áfram á vellinum og drífur ykkur áfram, hvort sem þið fylgdust með heiman frá eða hvöttuð okkur áfram í stúkunni. Þetta er það sem við upplifðum saman," segir Mbappe.

„Við komum ekki heim með verðlaun. Það er sárt, og það verður sárt um sinn. Ég ætla ekki að halda öðru fram. Ég er stoltur af því að hafa hlotið Gullskóinn, en hann hefði haft mun meiri þýðingu ef við hefðum einnig unnið heimsmeistaratitilinn. Kannski skulduðum við ykkur betri endi. En við ráðum ekki alltaf því hvernig sagan endar. Við ráðum hins vegar því hvað við leggjum í hana, og við gáfum allt okkar. Það er eitthvað sem við getum verið stoltir af."

„Sem barn dreymdi mig um að spila á heimsmeistaramóti. Aðeins einu sinni. Ég hef nú spilað á þremur mótum, unnið eitt þeirra, og í ár hef ég notið þess miklu heiðurs að vera fyrirliði landsliðsins. Ég mun aldrei gleyma því," skrifar Mbappe meðal annars.


Mbappe stakk niður penna - Sársauki sem mun vara í einhvern tíma
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.