Fotbolti.net
27.07.26 - 17:04
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Töluðu svo mikið um mögulegt leikbann að það raungerðist - „Ótrúlega svekkjandi"

Töluðu svo mikið um mögulegt leikbann að það raungerðist - „Ótrúlega svekkjandi"
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Mér líst bara gríðarlega vel á leikinn í kvöld, við erum búnir að æfa vel og undirbúa okkur vel. Þetta verður veisla," segir Birgir Baldvinsson, leikmaður KA, fyrir nágrannaslaginn gegn Þór sem fram fer á nýjum Greifavelli klukkan 19:15 í kvöld.

„Ég held að lykillinn sé að verða yfirvegaðir og leyfa gæðunum okkar að skína. Við erum með hrikaleg gæði í þessu liði og kominn tími að sýna þau almennilega."
Álitsgjafar spá í Akureyrarslaginn - Verður þá með 200% fleiri mörk en Djuric
TENGT EFNI

Álitsgjafar spá í Akureyrarslaginn - Verður þá með 200% fleiri mörk en Djuric

Birgir, sem er næstmarkahæsti leikmaður KA á tímabilinu, verður sjálfur ekki með KA þar sem hann kom sér í leikbann með því að fá gult spjald gegn ÍBV í síðasta leik.

„Ég vissi fyrir leikinn gegn ÍBV að ef ég fengi gult þá yrði ég í banni. Við töluðum mikið um það í Eyjum og Grímsi sagði mér að hætta að tala um það. Ég held að þetta hafi verið of mikið rætt sem varð til þess að ég fékk svo gult."

„Ég áttaði mig á því um leið og ég negldi Arnór (Inga Kristinsson) niður að ég væri að fá gult, hélt ég myndi ná boltanum en svo var ekki."

„Það er bara ótrúlega svekkjandi að fá ekki að spila fyrsta leikinn á ótrúlega flottum nýjum heimavelli en ég verð á vellinum og held uppi stemningunni. "


Hver eru þín skilaboð til liðsfélaganna?

„Valtið yfir þetta lið og fögnum þessu saman inn í klefa eftir leik."

Að lokum, hvernig spáir þú þessum leik?

„Sagan á það til að endurtaka sig svo ég spái 3-0 heimasigri," segir Birgir að lokum.
Töluðu svo mikið um mögulegt leikbann að það raungerðist - „Ótrúlega svekkjandi"
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Töluðu svo mikið um mögulegt leikbann að það raungerðist - „Ótrúlega svekkjandi"
Canon

Mynd: Sævar Geir Sigurjónsson

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.