Man Utd ætlar að bjóða Calvert-Lewin samning - Al Nassr á eftir Rodrygo - Chelsea fylgist með stöðu Nwaneri
Turnar segja sögur: Gullmörk, bikarævintýri og fallslagur í Noregi!
Útvarpsþátturinn - Fjör í Mosó og markaðurinn kominn í gang
EMvarpið - Grautfúlt að byrja mótið með þessum hætti
Leiðin úr Lengjunni - Njarðvíkingar brjóta blað og Árbæingar að vakna?
Grasrótin - 10. umferð, Mosóbrósar jarðtengdir af mögnuðum Magnamönnum
EMvarpið - Fylgdarmaður, fallegur bær og fyrsti leikur
Tímabilið nánast hálfnað í neðri deildunum!
Innkastið - Mótlæti og mætir ekki í viðtöl
Útvarpsþátturinn - Besta deildin, TG9 og EM
Tveggja barna móðirin sem leikur á sínu fjórða stórmóti fyrir Ísland
Diljá og Karólína: Úr Krikanum á Evrópumótið með Íslandi
Turnar segja sögur: Ísland og Júgóslavía
Grasrótin - 9. umferð, línurnar farnar að skýrast í neðri deildum
Leiðin úr Lengjunni - Fjölnismenn sóttu langþráðan sigur
Innkastið - Stuðningsmenn KR bauluðu á Hlíðarenda
Uppbótartíminn - Núna fer hausinn á EM
Tveggja Turna Tal - Ásmundur Guðni Haraldsson
Þjálfarar sem vita nákvæmlega hvað Ástríðan snýst um!
Útvarpsþátturinn - Þjálfaraskiptin á Skaganum
Turnar Segja Sögur - Kamerún 1990
   þri 27. ágúst 2019 14:04
Fótbolti.net
Ástríðan í neðri deildunum - Spennandi úrslitakeppni í 4. deild
Ingimar Helgi Finnsson og Magnús Valur Böðvarsson.
Ingimar Helgi Finnsson og Magnús Valur Böðvarsson.
Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson
Úrslitakeppnin í 4. deild karla hefst á föstudaginn þegar fyrri leikirnir í 8-liða úrslitum er á dagskrá.

Ótrúleg dramatík var í B-riðlinum í lok riðlakeppninar og spennan er mikil fyrir úrslitakeppnina.

Magnús Már Einarsson fékk þá Magnús Val Böðvarsson og Ingimar Helga Finnsson til að fara yfir stöðuna.

Magnús Valur er harðasti aðdáandi 4. deildarinnar og heldur úti aðganginum "passionleague" á Snapchat. Ingimar Helgi er leikmaður Árborgar í 4. deildinni.

Spáð var í spilin og skoðað hvaða lið eru líklegust til að fara upp um deild.

8-liða úrslit:

Föstudagur 30.ágúst:
Hvíti Riddarinn - Björninn (Varmárvöllur) kl 18:00
Hamar - Kormákur/Hvöt (Grýluvöllur) kl 18:00
Elliði - GG (Fylkisvöllur) kl 19:00
Ýmir - Ægir (Kórinn) kl 19:00

Þriðjudagur 3.september
Björninn - Hvíti riddarinn (Fjölnisvöllur) kl 19:00
Kormákur/Hvöt - Hamar (Blönduósvöllur) kl 17:15
GG - Elliði (Grindavíkurvöllur) kl 17:15
Ægir - Ýmir (Þorlákshafnarvöllur) kl 17:15

Hlustaðu í spilaranum hér að ofan eða í gegnum Podcast forrit.
Athugasemdir
banner