Isak vill enn fara - Vlahovic orðaður við Liverpool og Newcastle - Lammens færist nær Manchester United
   mið 27. ágúst 2025 13:10
Elvar Geir Magnússon
Landsliðshópurinn: Daníel Tristan ásamt bróður sínum í hópnum
Icelandair
Daníel Tristan leikur fyrir Malmö.
Daníel Tristan leikur fyrir Malmö.
Mynd: Malmö FF
Aron Einar er í hópnum.
Aron Einar er í hópnum.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Arnar Gunnlaugsson landsliðsþjálfari hefur valið hóp sem mætir Aserbaídsjan og Frakklandi í undankeppni HM 2026.

Um er að ræða tvo fyrstu leiki liðsins í undankeppninni. Ísland mætir Aserbaísjan á Laugardalsvelli föstudaginn 5. september og Frakklandi á Parc des Princes þriðjudaginn 9. september. Úkraína er þriðja liðið í riðlinum.

Efsta liðið mun komast beint á HM 2026 en liðið í öðru sæti fer í umspil.

Jóhann Berg Guðmundsson er að glíma við meiðsli og því ekki með. Daníel Tristan Guðjohnsen er í hópnum í fyrsta sinn en bróðir hans Andri Lucas Guðjohnsen er á sínum stað.

Gísli Gottskálk Þórðarson miðjumaður Lech Poznan gæti spilað sinn fyrsta landsleik. Umræða var um hvort Gylfi Þór Sigurðsson yrði í hópnum en hann er ekki valinn Gylfi var ekki með Víkingi í gær vegna smávægilegra meiðsla.

Landsliðshópurinn
Elías Rafn Ólafsson - FC Midtjylland - 7 leikir
Hákon Rafn Valdimarsson - Brentford F.C. - 20 leikir
Anton Ari Einarsson - Breiðablik - 2 leikir

Logi Tómasson - Samsunspor - 10 leikir, 1 mark
Mikael Egill Ellertsson - Genoa CFC - 21 leikur, 1 mark
Daníel Leó Grétarsson - SonderjyskE - 24 leikir
Aron Einar Gunnarsson - Al-Gharafa SC - 107 leikir, 5 mörk
Sverrir Ingi Ingason - Panathinaikos F. C. - 59 leikir, 3 mörk
Guðlaugur Victor Pálsson - AC Horsens - 50 leikir, 3 mörk
Bjarki Steinn Bjarkason - Venezia FC - 5 leikir
Gísli Gottskálk Þórðarson - Lech Poznan
Ísak Bergmann Jóhannesson - 1. FC Köln - 35 leikir, 4 mörk
Þórir Jóhann Helgason - U. S. Lecce - 19 leikir, 2 mörk
Stefán Teitur Þórðarson - Preston North End F.C. - 30 leikir, 1 mark
Hákon Arnar Haraldsson - LOSC Lille - 22 leikir, 3 mörk
Albert Guðmundsson - ACF Fiorentina - 41 leikur, 10 mörk
Kristian Nökkvi Hlynsson - FC Twente - 4 leikir
Willum Þór Willumsson - Birmingham City F. C. - 18 leikir
Jón Dagur Þorsteinsson - Hertha BSC - 46 leikir, 6 mörk
Mikael Neville Anderson - Djurgårdens IF Fotboll - 33 leikir, 2 mörk
Sævar Atli Magnússon - SK Brann - 6 leikir
Andri Lucas Guðjohnsen - K.A.A. Gent - 34 leikir, 9 mörk
Orri Steinn Óskarsson - Real Sociedad - 16 leikir, 7 mörk
Daníel Tristan Guðjohnsen - Malmö FF

Leikir Íslands í riðlinum:

Föstudagur 5. september
18:45 Ísland - Aserbaídsjan

Þriðjudagur 9. september
18:45 Frakkland - Ísland

10. okt: Ísland - Úkraína
13. okt: Ísland - Frakkland
13. nóv: Aserbaídsjan - Ísland
16. nóv: Úkraína - Ísland
Athugasemdir
banner
banner