Drátturinn hjá ensku liðunum: Nokkuð þægilegt fyrir Liverpool

Liverpool fær m.a. Atletico í heimsókn og heimsækir Inter.

Mynd: EPA

Arsenal mætir Real Madrid heima og Bayern úti.

Mynd: EPA


Mynd: EPA

City fær PSG í heimsókn en heimsækir Barcelona.

Mynd: EPA

Evrópudeildarmeistararnir í Aston Villa fá PSG í heimsókn og fara til Barcelona.

Mynd: EPA

Man Utd snýr aftur í Meistaradeildina og mætir m.a. Bayern á heimavelli og Atletico á útivelli.

Mynd: EPA

Liverpool fær m.a. Atletico í heimsókn og heimsækir Inter.

Mynd: EPA
Hvert lið spilar átta leiki; fjóra heimaleiki og fjóra útileiki. Liðin mæta tveimur liðum úr öllum fjórum styrkleikaflokkunum og geta ekki mætt liði frá sínu landi. Arsenal, Man City og Liverpool voru í efsta styrkleikaflokki en Man Utd og Aston Villa voru í flokki tvö.
Arsenal tekur á móti Real Madrid, heimsækir Bayern München og fær Hákon Arnar Haraldsson og félaga í Lille í heimsókn á Emirates.
Man City fær Evrópumeistarana í PSG í heimsókn og fer til Barcelona og mætir þar Rodri og hans félögum í Barca.
Liverpool fær Atletico í heimsókn og fer í til Mílanó og Tyrklands.
Aston Villa fékk nokkuð erfiðan drátt, liðið fær PSG í heimsókn og fer til Barcelona. Liðið þarf einnig að heimsækja Galatasaray og tekur á móti Dortmund á heimavelli. Amin Cosic og hans félagar í Viking koma þá í heimsókn á Villa Park.
Man Utd fær Bayern í heimsókn og fer til Madrídar og mætir þar Atletico. United mætir þá ítalska liðinu Como, lærisveinum Cesc Fabregas, á útivelli en Como var í fjórða styrkleikaflokki.
Ekki er ljóst á þessum tímapunkti hvenær leikirnir verða spilaðir.

Meistaradeildin: Margar safaríkar viðureignir framundan
Real Madrid (h)
Bayern (ú)
Dortmund (h)
Real Betis (ú)
Lille (h)
Napoli (ú)
Sabah (h)
Slavia Prag (ú)
Manchester City
PSG (h)
Barcelona (ú)
Sporting (h)
Porto (ú)
Napoli (h)
Leipzig (ú)
AEK Aþenu (h)
Lens (ú)
Liverpool
Atletico Madrid (h)
Inter (ú)
Porto (h)
Club Brugge (ú)
Villarreal (h)
Fenerbahce (ú)
Lens (h)
LASK (ú)
Manchester United
Bayern München (h)
Atletico Madrid (ú)
Roma (h)
Sporting (ú)
Leipzig (h)
Villarreal (ú)
Sabah (h)
Como (ú)
Aston Villa
PSG (h)
Barcelona (ú)
Borussia Dortmund (h)
Club Brugge (ú)
Fenerbahce (h)
Galatasaray (ú)
Viking (h)
Slavia Prag (ú)

Arsenal mætir Real Madrid heima og Bayern úti.

Mynd: EPA


Mynd: EPA

City fær PSG í heimsókn en heimsækir Barcelona.

Mynd: EPA

Evrópudeildarmeistararnir í Aston Villa fá PSG í heimsókn og fara til Barcelona.

Mynd: EPA

Man Utd snýr aftur í Meistaradeildina og mætir m.a. Bayern á heimavelli og Atletico á útivelli.

Mynd: EPA
