17:30Þessari lýsingu er lokið!Eigið gott kvöld.
17:14Hvað telur Guardian vera helsta fyrirsagnarefnið eftir dráttinn?Arsenal mætir Real Madrid, Man City fékk PSG og Barca, Man Utd tekur á móti Bayern.
Svona hljóðar fyrirsögn Guardian.
17:14
Mynd: EPA
17:13Púffff... drættinum er lokið!
17:12Slovan Bratislava mætirInter, PSG, Real Betis, Roma, Shaktar, Lille, Stuttgart og LASK.
17:12AEK Aþenu mætirReal Madrid, Man City, Roma, Dortmund, Galatasaray, Shaktar, LASK og Como
17:11Viking frá Noregi mætirBayern, Atletico, PSV, Aston Villa, Feyenoord, Napoli, Sabah og Stuttgart.
17:10LASK mætirLiverpool, Real Madrid, Porto, Sporting, Fenerbahce, Bodö/Glimt, Slovan Bratislava og AEK Aþenu.
17:09Como mætirPSG, Barcelona, Man Utd, Real Betis, Leipzig, Feyenoord, Lens og AEK Aþenu.
17:08Stuttgart mætirAtletico, Inter, Club Brugge, PSV, Lille, Galatasaray, Viking og Slovan Bratislava.
17:07Sabah mætirBarcelona, Arsenal, Dortmund, Man Utd, Napoli, Villarreal, Slavia Prag, Viking.
Aserska félagið var stofnað fyrir níu árum og er komið meðal þeirra bestu í álfunni.
17:06Slavia Prag mætirArsenal, Bayern, Aston Villa, Porto, Villarreal, Fenerbahce, Lens, Sabah.
17:05Lens mætirMan City, Liverpool, Sporting, Club Brugge, Bodö/Glimt, Leipzig, Como og Slavia Prag.
17:05Þá er bara fjórði styrkleikaflokkurinn eftirÞetta er allt farið að skýrast
17:03Lille mun mætaBayern München heima, Arsenal úti, Real Betis heima, Roma úti, Galatasaray heima, Bodö/Glimt úti, Slovan Bratislava heima, Stuttgart úti.

Mynd: EPA
17:02Napoli mun mætaArsenal, Man City, Club Bruggem Porto, Bodö/Glimt, Villarreal, Viking, Sabah.
17:01Galatasaray mætirBarcelona, PSG, Aston Villa, Sporting, Feyenoord, Lille, Stuttgart, AEK.
17:01Hér má sjá dráttinn hjá ensku liðunum 17:00Feyenoord mætirInter, Barcelona, Porto, Real Betis, Leipzig, Galatasaray, Como og Viking.
17:00Fenerbahce mætirLiverpool, Atletico, Roma, Aston Villa, Villarreal Shaktar, Slavia Prag, LASK.
16:58RB Leipzig mun mætaMan City, Real, PSV. Man Utd, Shaktar, Feyenoord, Lens og Como
16:57Bodö/Glimt mun mætaAtletico Madrid, Bayern München, Dortmund, Club Brugge, Lille, Napoli, LASK, Lens.
16:57Villarreal mun mætaPSG, Liverpool, Man Utd, Dortmund, Napoli, Fenerbahce, Sabah og Slavia Prag.
16:56Man Utd - heima og útiBayern Munchen (h), Atletico Madrid (ú), Roma (h), Sporting Club (ú), Leipzig (h), Villarreal (ú), Sabah (h), Como (ú)
16:56Shaktar Donetsk mun mætaReal Madrid, Inter, Sporting, PSV, Fenerbahce, Leipzig, AEK Aþena, Slovan Bratislava.
16:54Þá er það þriðji styrkleikaflokkur
16:54Aston Villa - heima og útiPSG (h), Barcelona (ú), Borussia Dortmund (h), Club Brugge (ú), Fenerbahce (h), Galatasaray (ú), Viking (h), Slavia Prag (ú)
16:53Arsenal - heima og útiReal Madrid (h), Bayern München (ú), Borussia Dortmund (h), Real Betis (ú), Lille (h), Napoli (ú), Sabah (h), Slavia Prag (ú)
16:52PSV mun mætaAtletico Madrid, Real Madrid, Club Brugge, Porto, Shaktar, Leipzig, Stuttgart og Viking.
16:51Sporting mun mætaBarcelona, Man City, Man Utd, Roma, Galatasaray, Shaktar, LASK og Lens.
16:50Man Utd mun mætaBayern München, Atletico Madrid, Roma, Sporting, Leipzig, Villarreal, Sabah og Como.
16:49Roma mun mætaReal Madrid, PSG, Sporting Lissabon, Man Utd, Lille, Fenerbahce, Slovan Bratislava og AEK Aþena.
16:48Real Betis mætirArsenal, Bayern, Porto, Dortmund, Feyenoord, Lille, Como og Slovan Bratislava.
16:48Aston Villa mun mætaPSG, Barcelona, Borussia Dortmund, Club Brugge, Fenerbahce, Galatasaray, Viking og Slavia Prag.
16:47Porto mun mætaMan City, Liverpool, PSV, Real Betis, Napoli, Feyenoord, Slavia Prag og LASK.
16:46Borussia Dortmund mun mætaInter, Arsenal, Real Betis, Aston Villa, Villarreal, Bodö/Glimt, AEK Aþenu og Sabah.
16:45Club Brugge mun mætaLiverpool, Inter, Aston Villa, PSV, Bodö/Glimt, Napoli, Lens og Stuttgart.
Já það er byrjað að draga úr styrkleikaflokki 2.
16:44Liverpool - heima og útiAtletico Madrid (h), Inter Milan (ú), Porto (h), Club Brugge (ú), Villarreal (h), Fenerbahce (ú), Lens (h), LASK (ú)
16:43Man City - heima og útiPSG (h), Barcelona (ú), Sporting Club (h), Porto (ú), Napoli (h), Leipzig (ú), AEK Aþena (h), Lens (ú).
16:42Rodri mætir Man City
Mynd: EPA
Rodri og félagar í Barcelona munu mæta Manchester City. Það er sögulína.
16:42Þar með er búið að draga andstæðinga fyrir liðin úr fyrsta styrkleikaflokki.
16:41BAYERN MÜNCHEN MÆTIRArsenal, Atletico Madrid, Real Betis, Man Utd, Bodö/Glimt, Lille, Slavia Prag og Viking.
16:39ARSENAL MÆTIRReal Madrid, Bayern, Dortmund, Real Betis, Lille, Napoli, Sabah og Slavia Prag.
Hákon Arnar Haraldsson og félagar í Lille fá útileik gegn Arsenal.
16:38LIVERPOOL MÆTIRAtletico Madrid, Inter, Porto, Club Brugge, Villarreal, Fenerbahce, Lens og LASK.
16:37PSG MÆTIRBarcelona, Man City, Roma, Aston Villa, Galatasaray, Villarreal, Slovan Bratislava og Como.
16:36ATLETICO MADRID MÆTIRBayern, Liverpool, Man Utd, PSV, Fenerbahce, Bodö/Glimt, Viking og Stuttgart.
16:34BARCEELONA MÆTIRMan City, PSG, Aston Villa, Sporting, Feyenoord, Galatasaray, Como og Sabah.
16:33INTER MÆTIRReal Madrid, Liverpool, Club Brugge, Dortmund, Shaktar, Feyenoord, Stuttgart og Slovan Bratislava.
16:32MANCHESTER CITY MÆTIRPSG, Barcelona, Sporting, Porto, Napoli, Leipzig, AEK Aþenu og Lens.
16:31REAL MADRID MÆTIRInter, Arsenal, PSV, Roma, Leipzig, Shaktar, LASK og AEK Aþenu
16:30Þá fer þetta í gang!
Mynd: EPA
16:29Byrjað á fyrsta styrkleikaflokkiStóru strákarnir. Verið er að kynna liðin sem þar eru með myndbandi og taktföstum tónum.
16:26Verið er að fara yfir fyrirkomulagið á drættinumLesendur Fótbolta.net eru með þetta allt á hreinu.
16:24Marchetti er mættur á svið!Það þýðir bara eitt... aðalrétturinn verður borinn á borð eftir smástund.
16:22Íslendingar í pottunumHákon Arnar Haraldsson er lykilmaður hjá Lille sem er meðal liða sem eru í styrkleikaflokki 3. Í styrkleikaflokki 4 er svo Viking frá Stafangri en Amin Cosic yfirgaf KR í sumar og gekk í raðir norska félagsins.
16:21David Villa meðal þeirra sem munu aðstoða með dráttinnÞessi fyrrum leikmaður Valencia, Barcelona og Atletico Madrid mætir á svið og spjallar við Reshmin Chowdhury og Pedro Pinto sem eru kynnar kvöldsins.
16:18Fleiri verðlaun
Mynd: EPA
Thierry Henry hlýtur Forsetabikar UEFA. Áður hafa menn á borð við Bobby Robson, Johan Cruyff, David Beckham og Didier Drogba hlotið þessa viðurkenningu.
16:17Marquinhos er ekki á staðnum en sendi myndbandskveðju„Ég vil þakka ykkur fyrir þennan bikar. Hann gleður mig mjög. Heiðarleg framkoma er nauðsynlegur hluti af bæði fótboltanum og daglegu lífi og ég mun halda áfram að sýna liðsfélögum mínum, andstæðingum, dómurum og öllum öðrum sem koma að leiknum, virðingu. Ég er mjög ánægður og stoltur að fá þessa viðurkenningu.“
16:14Drago styttanMarquinhos fyrirliði PSG fær sérstök háttvísi og framkomuverðlaun fyrir að hafa hughreyst Gabriel Magalhaes leikmann Arsenal sem klúðraði víti í úrslitaleiknum á síðasta tímabili.
16:12Íslandsvinurinn mættur
Mynd: EPA
Sir Jim Ratcliffe, meðeigandi í Manchester United, er meðal viðstaddra. Manchester United er mætt aftur í Meistaradeildina.
16:10Kóngarnir hjá PSG
Mynd: EPA
Forseti PSG, Nasser Al-Khelaifi (til hægri), er mættur á svið. Hann er að taka á móti verðlaunum.
16:05Ceferin mættur á sviðCeferin forseti UEFA er mættur á svið. Hann hefur í nægu að snúast þessa dagana og nánast í fullu starfi við að hnýta í Gianni Infantino forseta FIFA. Í dag var greint frá því að UEFA ætlar að höfða mál gegn Infantino vegna áætlana hans um að hleypa fjárfestum að innviðum fótboltans.
16:00Athöfnin er farin af staðMeistaradeildarlagið spilað í lifandi flutningi með þremur glæsilegum söngkonum. Huggulegt.
15:57Hvernig verður drættinum háttað? Förum yfir þetta- Liðunum 36 er skipt upp í fjóra styrkleikaflokka.
- Byrjað verður í fyrsta styrkleikaflokki og dregið fyrir eitt lið í einu. Gervigreindin velur átta mótherja fyrir hver lið.
- Paris St-Germain, Bayern München, Real Madrid, Liverpool, Inter Milan, Manchester City, Arsenal, Barcelona og Atletico Madrid eru í fyrsta styrkleikaflokki.
- Hvert lið spilar átta deildarleiki, tvö lið úr hverjum potti - eitt heima og eitt úti.
- Lið frá sama landi geta ekki mæst í deildarkeppninni. Lið geta ekki spilað fleiri en einn leik gegn liðum frá e-u landi.
15:53David Villa mættur á dregilinn rauða
15:48Hvenær hefst drátturinn raunverulega?Athöfnin hefst 16:00 en eins og UEFA er von og vísa má búast við húllumhæi og skemmtiatriðum til að teygja lopann. Ef við miðum við síðasta ár þá mun drátturinn fara raunverulega í gang klukkan 16:30. Þangað til eiga áhorfendur von á söngatriðum, sprellimyndböndum, verðlaunaafhendingum, ræðum og jafnvel töframanni?
15:41Fimm ensk lið í keppninniArsenal, Manchester City, Liverpool, Manchester United og Aston Villa eru fulltrúar Englands. Þessi lið eiga sér marga aðdáendur hér á landi og við munum fylgjast sérstaklega vel með því hvaða mótherja þau fá.
15:35Hvar hafa meistararnir endað?Paris Saint-Germain hefur unnið Meistaradeildina í bæði skiptin sem spilað er eftir þessu fyrirkomulagi. Áhugavert er að liðið hefur í hvorugt skipti endað í topp 8 í deildinni, þeir enduðu í 15. sæti og 11. sæti í deildarkeppninni.

Mynd: EPA
15:31CR7 er mættur á rauða dregilinn
15:29Stjarna sýningarinnar
Mynd: EPA
Að vanda er það Giorgio Marchetti sem heldur utan um sýninguna, veislustjóri (master of ceremonies) hjá UEFA. Marchetti er bestur í Evrópu að draga og á löngum og einstaklega farsælum ferli hans hefur dráttur aðeins einu sinni mistekist. Reyndar er dráttur dagsins að mestu tölvustýrður en Marchetti sér til þess að allt fari fullkomlega fram.
15:26Leiðin á Metropolitano
Mynd: EPA
Úrslitaleikurinn þetta tímabilið verður á Metropolitano leikvangnum í Madríd, heimavelli Atletico. Hvaða lið munu þar etja kappi þann 5. júní?
15:18Svona eru styrkleikaflokkarnirÞetta er þriðja tímabilið með nýja fyrirkomulaginu þar sem 36 lið munu keppa við átta mismunandi andstæðinga og öll liðin raðast upp á sömu töflu. Átta efstu liðin komast beint í 16-liða úrslit en liðin í 9.-24. sæti fara í umspil.
Styrkleikaflokkur 1
Paris St-Germain (Frakkland)
Bayern München (Þýskaland)
Real Madrid (Spánn)
Liverpool (England)
Inter (Ítalía)
Manchester City (England)
Arsenal (England)
Barcelona (Spánn)
Atletico Madrid (Spánn)
Styrkleikaflokkur 2
Borussia Dortmund (Þýskaland)
Roma (Ítalía)
Sporting (Portúgal)
Aston Villa (England)
Porto (Portúgal)
Manchester United (England)
Club Brugge (Belgía)
Real Betis (Spánn)
PSV Eindhoven (Holland)
Styrkleikaflokkur 3
Feyenoord (Holland)
Lille (Frakkland)
Bodö/Glimt (Noregur)
Napoli (Ítalía)
RB Leipzig (Þýskaland)
Villarreal (Spánn)
Shakhtar Donetsk (Ukraína)
Galatasaray (Tyrkland)
Fenerbahce (Tyrkland)
Styrkleikaflokkur 4
Viking (Noregur)
Slovan Bratislava (Slóvakia)
Slavia Prague (Tékkland)
VfB Stuttgart (Þýskaland)
LASK (Austurríki)
AEK Aþena (Grikkland)
Como (Ítalía)
Lens (Frakkland)
Sabah (Aserbaísjan)
15:17Tvö norsk lið eru í keppninni
Mynd: EPA
Áhugavert er að tvö norsk lið eru í Meistaradeildinni þetta tímabilið; Bodö/Glimt og Viking. Þetta er í fyrsta sinn í 27 ár sem tvö norsk lið eru í keppninni.
15:14Góðan og gleðilegan daginn!Í dag kemur í ljós hvaða lið mætast í deildarkeppni Meistaradeildarinnar en drátturinn fer fram í Mónakó klukkan 16:00. Það er spenna í lofti og við fylgjumst með í beinni textalýsingu.
Hér getur þú horft á dráttinn í beinni