Fotbolti.net
27.08.26 - 09:32
Elvar Geir Magnússon

Liverpool að gera stærstu kaupin í glugganum

Barcola kemur frá PSG.

Barcola kemur frá PSG.

Canon

Mynd: EPA

Liverpool er að ganga frá 120 milljóna punda kaupum á kantmanninum Bradley Barcola frá Paris Saint-Germain. Þetta verða stærstu kaup sumargluggans, toppa 117 milljóna punda kaup Chelsea á Morgan Rogers frá Aston Villa.

PSG hafði áður sett 140 milljóna punda verðmiða á þennan 23 ára franska landsliðsmann en hefur nú gert samkomulag um að lækka hann töluvert.

Barcola er réttfættur og kom til PSG frá Lyon 2023. Hann var með Frökkum á HM í sumar og hefur verið helsta skotmark Liverpool í þessum glugga. Tvisvar hefur hann unnið Meistaradeildina með PSG.
Liverpool hefur náð samkomulagi um Barcola
TENGT EFNI

Liverpool hefur náð samkomulagi um Barcola

Þegar tölurnar eru skoðaðar
Við fyrstu sýn virðist Barcola vera arftaki fyrir Luis Díaz en Liverpool ákvað ekki að fá leikmann beint til að fylla hans skarð fyrir ári síðan. Samkvæmt tölfræði Opta eru mikil líkindi með þeim tveimur.

Aðalstaða Barcola er vinstri kantur en hann spilaði sem framherji til 17 ára aldurs, sem endurspeglast í hreyfingum hans og skotvali. Síðasta tímabil átti hann að meðaltali 3,5 skot á hverjum 90 mínútum í frönsku deildinni,

Hann skoraði ellefu mörk en var með 9,83 í væntum mörkum (xG). Enginn leikmaður PSG eða vængmaður í deildinni náði hærra xG samtals á tímabilinu 2025-26.

Verður Gakpo seldur?
Þrátt fyrir að vera að landa Barcola er búist við því að Liverpool reyni að fá annan kantmann til viðbótar. Tveimur tilboðum í Yankuba Minteh var hafnað af Brighton og þá hefur félagið sýnt Ismaila Sarr hjá Crystal Palace áhuga.

Framtíð Cody Gakpo hjá Liverpool virðist í óvissu en Tottenham og Manchester City hafa sýnt hollenska landsliðsmanninum áhuga.
Liverpool að gera stærstu kaupin í glugganum
Canon

Mynd: EPA

Liverpool að gera stærstu kaupin í glugganum
Canon

Mynd: EPA

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Brighton1+43
2Arsenal1+33
3Brentford1+33
4Everton1+23
5Hull City1+23
6Chelsea1+13
7Man City1+13
8Ipswich Town1+13
9Leeds1+13
10Liverpool101
11Newcastle101
12Fulham1-10
13Sunderland1-10
14Bournemouth1-10
15Nott. Forest1-10
16Man Utd1-20
17Crystal Palace1-20
18Tottenham1-30
19Coventry1-30
20Aston Villa1-40
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.