27.08.26 - 15:56
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Stjarnan svarar Jóni Þór með myndbandi

Egill Atlason er sjúkraþjálfari Stjörnunnar og hefur verið það síðustu árin. Hann er bróðir Emils Atlasonar, leikamnns liðsins.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Egill Atlason er sjúkraþjálfari Stjörnunnar og hefur verið það síðustu árin. Hann er bróðir Emils Atlasonar, leikamnns liðsins.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Stjarnan hefur svarað ummælum Jóns Þórs Haukssonar, fyrrum þjálfara Stjörnunnar sem hann lét falla í viðtali við Gunnlaug Jónsson á mánudag. Jón Þór var látinn fara frá Stjörnunni fyrir viku síðan. Stjarnan svarar honum í myndbandi þar sem sýnt er frá æfingu liðsins í Miðgarði.
Jón Þór sagði í viðtalinu að það væri enginn sjúkraþjálfari og enginn fitness/styrktarþjálfari hjá félaginu.
Jón Þór sagði í viðtalinu að það væri enginn sjúkraþjálfari og enginn fitness/styrktarþjálfari hjá félaginu.

TENGT EFNI
Jón Þór: Þar komu fyrstu rauðu flöggin fram
„Það sem kom mér alveg svakalega á óvart... ég var eiginlega í pínu sjokki þegar ég byrjaði að starfa í Stjörnunni. Það reynist enginn styrktarþjálfari, enginn sjúkraþjálfari og enginn fitness þjálfari starfandi í klúbbnum. Mér fannst þetta vera í hrópandi ósamræmi við það að Stjarnan ætlaði sér að vera topplið á Íslandi og í titilbaráttu þetta tímabilið. Ég vissi ekki af því fyrir fram," sagði Jón Þór í viðtalinu.
Í myndbandinu er stryktarþjálfarinn Hermann Þór Haraldsson sérstaklega kynntur og sömuleiðis sjúkraþjálfarinn Egill Atlason. Hermann er meðeigandi í Elite þjálfun og Egill starfar hjá Sjúkraþjálfun Garðabæjar. Myndbandið má sjá hér að neðan.
Framundan hjá Stjörnunni er útileikur gegn Breiðabliki og svo heimaleikur gegn ÍBV í lokaumferð fyrir tvískiptingu.

Stöðutafla
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Víkingur R. | 20 | +46 | 51 |
| 2 | KR | 20 | +27 | 43 |
| 3 | Fram | 20 | +14 | 43 |
| 4 | Breiðablik | 20 | +5 | 30 |
| 5 | Keflavík | 20 | -3 | 28 |
| 6 | ÍA | 20 | -4 | 26 |
| 7 | Stjarnan | 20 | -10 | 24 |
| 8 | Valur | 20 | -7 | 23 |
| 9 | FH | 20 | -12 | 18 |
| 10 | ÍBV | 20 | -12 | 17 |
| 11 | KA | 20 | -14 | 16 |
| 12 | Þór | 20 | -30 | 15 |