Fotbolti.net
27.10.05 - 11:17
Hafliði Breiðfjörð

Þórður Birgisson til HK (Staðfest)

Þórður Birgisson í HK búningnum í gær

Þórður Birgisson í HK búningnum í gær

Canon

Mynd: HK.is

1. deildarlið HK er að styrkja sig fyrir átökin næsta sumar en í gærkvöld skrifaði Þórður Birgisson framherji frá KS á Siglufirði undir samning við félagið.
Samningur Þórðar var til tveggja ára en hann er 22 ára framherji sem hefur spilað með meistaraflokki KS frá 16 ára aldri ef undanskilin eru árin 2002 og 2003 er hann lék með IA.

Í gærkvöld skrifaði Jón Þorgrímur Stefánsson einnig formlega undir tveggja ára samning við félagið en við höfðum áður greint frá því að Jón hefði ákveðið að ganga til liðs við HK frá Íslandsmeisturum FH.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.