Sergio Aguero, framherji Manchester City, verður frá keppni næstu vikurnar vegna meiðsla sem hann varð fyrir gegn West Ham um helgina.
„Við búumst við 10-15 dögum að minnsta kosti en þetta gætu verið þrjár vikur eða mánuður," sagði Pep Guardiola, stjóri Manchester City.
Aguero er því mjög tæpur fyrir stórleikinn gegn Liverpool í ensku úrvalsdeildinni eftir tólf daga.

Fyrir eru á meiðslalista Manchester City þeir Gabriel Jesus, Fernandinho, Benjamin Mendy, Nathan Ake og Fernandinho.
Góðu fréttirnar fyrir City eru hins vegar þær að Aymeric Laporte er klár eftir meiðsli og verður með gegn Lyon í Meistaradeildinni í kvöld.
Athugasemdir