Varnarmaðurinn Phil Jones ferðaðist með leikmannahópi Manchester United til London í dag og verður mögulega í hópnum gegn Chelsea á morgun.
Ef svo verður, þá er það í fyrsta sinn í tæp tvö ár þar sem Jones verður í leikmannahópi Man Utd í ensku úrvalsdeildinni.
Hann hefur ekki spilað keppnisleik fyrir Man Utd í 671 dag.
Jones hefur verið gríðarlega óheppinn með meiðsli á sínum ferli og ekki oft náð að tengja marga leiki saman.
Michael Carrick, fyrrum liðsfélagi Jones hjá Man Utd, stýrir liðinu á morgun. Fyrirliðinn Harry Maguire er í banni og Raphael Varane er meiddur. Því gæti opnast pláss fyrir Jones á bekknum.
Phil Jones has travelled with the #mufc squad to Chelsea and could be named in a league matchday squad for the first time in 650 days tomorrow. He hasn’t played a competitive game in 671 days.
— Samuel Luckhurst (@samuelluckhurst) November 27, 2021
Athugasemdir