Fotbolti.net
27.11.26 - 10:09
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Tómas Orri framlengir við FH - Önnur félög hafa horft til hans

Skoraði sex mörk og lagði upp tvö í Bestu deildinni í sumar.

Skoraði sex mörk og lagði upp tvö í Bestu deildinni í sumar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

U21 landsliðsmaðurinn Tómas Orri Róbertsson hefur skrifað undir nýjan samning við FH og er nú samningsbundinn út tímabilið 2029. Fyrri samningur hefði runnið út eftir tímabilið 2028.

Tómas Orri kom til FH frá Breiðabliki fyrir tímabilið 2025 og varð strax lykilleikmaður í liði FH. Frá komu sinni í FH hefur hann spilað ellefu leiki fyrir U21 landsliðið.

Samkvæmt heimildum Fótbolta.net hafa bæði Breiðablik og ÍA verið að horfa til miðjumannsins síðustu mánuði.
Tómas orðaður við Víking og ÍA - „Ekkert mikið að pæla í þessu"
TENGT EFNI

Tómas orðaður við Víking og ÍA - „Ekkert mikið að pæla í þessu"

„Við erum mjög ánægð með að Tómas Orri hafi framlengt samning sinn. Hann hefur tekið stór skref frá því hann kom til okkar og er leikmaður sem leggur mikið á sig á hverjum degi. Hann passar vel inn í það sem við viljum standa fyrir og það er mikilvægt fyrir félagið að halda leikmönnum eins og Tómasi. Við hlökkum til að fylgjast með honum halda áfram að vaxa í FH-treyjunni og taka þátt í því verkefni að koma FH aftur í fremstu röð," segir Davíð Þór Viðarsson sem er yfirmaður fótboltamála hjá FH.
Byrjaði báða umspilsleikina gegn Grikkjum með U21.

Byrjaði báða umspilsleikina gegn Grikkjum með U21.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.