27.11.26 - 09:50
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Ísland framleiðir nú þegar leikmennina, nú þarf að fá greitt fyrir þá
Skýrsla frá Goalunit

Hákon Arnar spilaði aldrei í Bestu deildinni. ÍA fékk mjög fína upphæð þegar hann fór frá FCK til Lille.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Orri Steinn spilaði með Gróttu í Lengjudeildinni áður en hann fór til FCK.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Viktor Bjarki spilaði nokkra leiki með Fram áður en hann fór til FCK.

Á fundum ÍTF, íslensks Toppfótbolta, um síðustu helgi var farið yfir skýrslu frá sænska greiningarfyrirtækinu Goalunit. Besta deildin er í samstarfi með Goalunit og hafa félögin aðgang að forritinu. Hér er reynt að greina frá því helsta í skýrslunni.
Í henni segir að til þess að Besti deildin verði betri þurfi hærri fjárhæðir og það sé hægt að fá meira fyrir leikmennina sem íslensk félög eru að búa til.
Íslensk félög fá að jafnaði minna fyrir leikmenn sem þau selja út, gömlu góðu 200 þúsund evrurnar eru áfram algengt viðmið þegar kemur að sölum frá Íslandi, og leikmenn fara jafnvel á enn lægri upphæðir. Eitt af því sem eykur verðmæti leikmanna er að hafa þá á lengri samningum.
Útfrá tíu verðmætustu íslensku leikmönnunum er Ísland í efsta sæti í verðmætum þegar kemur að höfðatölu. Vandamálið sé hins vegar að fæstir af þeim hafa spilað á Íslandi. Sjö af tíu verðmætustu leikmönnum Íslands, að mati Goalunit, eiga ekki leik í efstu deild á Íslandi.
Að meðaltali tvöfölduðu félög innkomu sína á árunum 2021-2025 með leikmannasölum en á Íslandi hækkaði innkoman einungis um 12%.

Á Norðurlöndunum er Besta deildin neðst í mínútum til U23 ára leikmanna og leikmenn 29 ára og eldri fá flestar mínútur á Íslandi af deildunum á Norðurlöndunum.
Íslensk félög framleiða hæfileikaríka leikmenn en erlend félög græða á þeim.
Í sambærilegum deildum er Ísland í neðsta sæti þegar kemur að því að fá pening fyrir leikmenn. Sumarglugginn var góður á íslenskan mælikvarða en félög í Írlandi og Lettlandi fengu hærri upphæð fyrir leikmannasölur en Ísland.
Goalunit bendir á nokkrar lausnir sem gætu hjálpað. Ísland framleiðir nú þegar leikmennina, nú þurfi að fá greitt fyrir þá.
1. Fækka mínútum hjá leikmönnum 29 ára og eldri og fjölga mínútunum hjá U23 leikmönnum.
2. Fjárfesta meira í yngri leikmönnum.
3. Bíða með að selja leikmenn eftir að þeir hafa spilað í Bestu deildinni.
4. Nýta peninginn sem fæst í að fjárfesta í næstu kynslóð.
Selt fyrir 2,4 milljónir evra í sumarglugganum

Ísland er að framleiða leikmenn en aðrir græða á þeim

Fara áður en þeir spila á Íslandi

Mun minni vöxtur í innkomu á Íslandi