28.01.05 - 06:59
Magnús Már Einarsson
Musampa lánaður til Manchester City (Staðfest)

Manchester City hefur gengið frá sex mánaða lánssamningi á vinstri kantmanninum Kiki Musampa og verður hann í láni hjá félaginu frá Atletico Madrid út þetta tímabil. Manchester City hefur svo möguleika á að kaupa hinn 27 ára gamla Musampa næsta sumar.
Musampa sem fæddist í Kongó er með hollenskt vegabréf en hann lék með Ajax á sínum tíma. Hann kom til Atletico Madrid frá Malaga fyrir síðustu leiktíð en hann hefur lítið fengið að spila hjá fyrrnefnda liðinu.
Hann var í byrjunarliði Atletico í fyrstu sex leikjum liðsins á tímabilinu en hefur lítið komið við sögu eftir það. Gaman verður að sjá Musampa í enska boltanum en getur leikið sinn fyrsta leik fyrir Manchester City gegn Newcastle þann annan febrúar.